Salur formlega tekin í notkun á föstudag

admin • 2. febrúar 2016

Á föstudaginn kemur, 5. febrúar  klukkan 19-21 verður formlega tekinn í notkun nýr salur Blaðamannafélags Íslands í austuenda hússins að Síðumúla 23, þar sem skrifstofur BÍ eru. Við það tækifæri verður tilkynnt um nafn salarins. Við sama tækifæri stendur til að heiðra nokkra blaðamenn fyrir langan og farsælan feril í blaðamennsku og störf í þágu Blaðamannafélagsins í gegnum tíðina.  Matur og drykkur verður á boðstólum og eru félagsmenn og makar þeirra hvattir til að mæta.  Vinsamlegast skráið ykkur hér á   press.is á skráningarhnapp sem er hér á forsíðunni   til þess að hægt sé að áætla nokkurn veginn fjölda þeirra sem hyggjast koma.

 

 

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.