Skora á pólska blaðamenn að standa vörð um blaðamennsku

admin • 1. febrúar 2016

Evrópusamband blaðamanna (EFJ) ásamt tveimur öðrum evrópskum fjölmiðlasamtökum  hafa að aflokinni tveggja daga vinnu- og upplýsingaferð til Póllands skorað á pólska blaðamenn að standa vörð um grundvallaratriði blaðamennsku og frelsis fjölmiðla.

Þessi áskorun kemur í kjölfar þess að pólsk stjórnvöld hafa gert umdeildar breytingar á umgjörð almannaútvarps þar í landi Ríkisútvarpinu og heimilað fjármálaráðherra landsins að reka og ráða beint fólk sem er í stjórnunarstöðum hjá stofnuninni.  Þessi löggjöf hefur sætt mikilli gagnrýni og þykir hún vega mjög að sjálfstæði almannaútvarpsins.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.