Tilnefningarfrestur styttist!

admin • 25. janúar 2016

Skilafrestur tilnefninga til dómnefndar vegna Blaðamannaverðlauna fyrir árið 2015 rennur út í lok þessarar viku og er kl. 12 á hádegi föstudaginn 29. janúar .

Eins og  síðustu ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir eru þessir:

• Besta umfjöllun ársins 2015 

• Viðtal ársins 2015 

• Rannsóknarblaðamennska ársins 2015 

• Blaðamannaverðlaun ársins 2015

Hægt er að senda inn tilnefningar  til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla  23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að tilnefna með rafrænum hætti – með hnappnum „Tilnefnið hér“ hér til hliðar á síðunni.

Tilnefningar dómnefndar verða síðan gerðar kunnar í laugardaginn 27. febrúar og viku síðar, þann 5. mars verða verðlaunin sjálf afhent samhliða því að sýning Blaðaljósmyndarafélagsins „Myndir ársins“ verður opnuð í Perlunni.

Sjá reglugerð  um Blaðamannaveriðlaun B.Í.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.