Samfélagið í nærmynd fær fjölmiðlaverðlaun

admin • 17. september 2016

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, veitti á Degi íslenskrar náttúru, útvarpsþættinum Samfélaginu sem er á dagskrá Rásar 1 á RÚV, fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Í rökstuðningi dómnefndar segir m.a.: „Samfélagið á Rás 1, RÚV hljóðvarpi, hlýtur fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins árið 2016 fyrir að gefa íslenskri náttúru rödd á öldum ljósvakans með því að gera umhverfismál að þungamiðju í ritstjórnarstefnu sinni. Umsjónarmenn þáttarins, þau Leifur Hauksson, Þórhildur Ólafsdóttir og Björn Þór Sigbjörnsson, hafa ásamt sérfræðingum, sem þau hafa fengið til liðs við sig unnið framúrskarandi starf við að fjalla um náttúruvernd í víðum skilningi og benda á ógnir sem steðja að náttúrunni, en einnig að tengja þá umfjöllun öðrum málefnum, sem eru efst á baugi, og vekja hlustendur til vitundar um hve mikilvæg umhverfismál eru í daglegu lífi þeirra.“

Sjá einnig hér

Sjá einnig hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.