Evrópa: Aðgegni að upplýsingum ekki í lagi

admin • 29. september 2016

 Í gær var fyrsti viðurkenndi alþjóðadagur um rétt til upplýsinga og af því tilefni hafa ýmis borgarasamtök sem berjast mannréttindum ásamt samtökum sem starfa á sviði upplýsingamiðlunar – þar á meðal Evrópusamband blaðamanna – viðrað nokkrar áhyggjur af stöðu mála varðandi upplýsingafæði frá stjórnvöldum Evrópuríkja. Þessar áhyggjur tengjast meðal annars litlu gegnsæi í stjórnsýslu sem valdur vantrausti og þar með uppgani populisma í álfunni.  Samkvæmt nýrri athugun  á upplýsingafæði í nokkrum löndum í Evrópu þá hafur ástandið skánað en er enn víða mjög bágborið.  Meðal þess sem  bent hefur verið á er að víða er skráning gagna og fundargerða í molum og ekki hægt að finna upplýsingar um hvað  gerðist á mikilvægum fundum eða finna út efnisatriði samskipta við hagsmunaaðila. Fyrir vikið vantar iðulega rökstuðning eða forsendur fyrir ákvörðunartöku.

Sjá meira um málið hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.