Tjáningarfrelsið og Mannréttindasáttmáli Evrópu

admin • 5. október 2016

Fimmtudaginn 3. nóvember næstkomandi  mun Mannréttindastofnun Íslands standa fyrir námskeiði fyrir blaða- og fréttamenn um tjáningarfrelsið og Mannréttindasáttmála Evrópu. Námskeiðið hefst kl.  16.30-19.30, en staðsetning  verður nánar auglýst síðar. Á námskeiðinu verður fjallað um ákvæði 10. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu. Fjallað verður um dómaframkvæmd Mannréttindadómstólsins sem varðar réttindi og skyldur blaða- og fréttamanna. Þá verður rætt um dóma dómstólsins gegn Íslandi og þýðingu þeirra fyrir íslenskan rétt.

Kennari á námskeiðinu verður  Davíð Þór Björgvinsson, fyrrv. dómari við Mannréttindadómstól Evrópu og prófessor við Lagadeild HÍ

Verð fyrir þátttöku er kr. 25.000.  Félögum í Blaðamannafélaginu er bent á að hægt er að fá styrk úr Endurmenntunarsjóði.

Skráningarfrestur til 27. október - Takmarkaður fjöldi - Skráning hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.