Sjónvarpsfréttir: Aftur til fortíðar!

Birgir Guðmundsson • 18. janúar 2021

Í dag, 18 janúar 2021 verða þau tímamót í íslenskri fjölmiðlasögu að Stöð 2 hættir að segja fréttir í opinni dagskrá.  Þar með færist fjölbreytni á sjónvarpsfréttamarkaði að heita má aftur til haustsins 1986, þegar RÚV var eini valkostur þorra almennings um sjónvarsfréttir. Þessi tímamót hafa framkallað umtalsverð viðbrögð í samfélaginu, og m.a. samþykkti Blaðamannafélag Íslands harðorða ályktun vegna málsins fyrir helgina, sem greint hefur verið frá í flestum fjölmiðlum öðrum en RÚV. Þetta fréttamat RÚV vekur sérstaka athygli þar sem í  ályktuninni er kastljósinu beint að ójöfnum og rekstrarskilyrðum á fjölmiðlamarkaði og harðri og sérstaklega óeðlilegri framgöngu RÚV á auglýsingamarkakði sem m.a. hefur verið gagnrýnd af Samkeppniseftirlitinu.  Í ályktuninni  segir meðal annars: „Það er þungt áfall fyrir íslenska samfélagsumræðu og áfellisdómur yfir þeim rekstrarskilyrðum sem fyrirtækjum hefur verið búin á þessum markaði frá því að frelsi á ljósvakamarkaði varð að veruleika um miðjan níunda áratug síðustu aldar“.  Þá segir í ennfremur í ályktun BÍ: „Þegar ljósvakinn var frelsaður úr viðjum einokunar árið 1985 var það upphafið að mesta blómatíma í sögu íslenskrar fjölmiðlunar og undirstaða framfara í íslensku samfélagi á svo ótal mörgum sviðum.  Núna þegar útsendingar frétta Stöðvar 2 læsast öðrum en áskrifendum er það táknrænn lægsti punktur í samtímasögu íslenkrar fjölmiðlunar og segir ömurlega sögu um stöðuna á þessum markaði.“

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.