"Skynjunarútvarp" BBC

admin • 23. maí 2013

Þróunin í fjölmiðlatækni er hröð og nú hefur BBC kynnt tilraunaútgáfu af svokölluðu „skyjunarútvarpi“ (e: perseptive radio). Þetta útvarp aðlagar það efni sem í því er og hvernig það er spilað út frá ýmis konar kringumstæðum s.s. hvar það er staðsett, hvað klukkan er, hvar hlustandinn er staðsettur gagnvart tækinu og ýmsum bakgrunnshljóðum sem kunna að heyrast í umhverfinu þar sem tækið er staðsett.

Skynjunarútvarpið var kynnt í gær á ráðstefnunni „Thinking Digital“, sem haldin var í Gateshead í Bretlandi. Þetta tæki er hluti af Skynjunarmiðlunar verkefni sem BBC ýtti úr vör í fyrra.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.