Vill fjölga fréttakonum á skjám BBC

admin • 24. maí 2013

James Harding, verðandi fréttastjóri hjá BBC hefur viðurkennt að hann hafi áhyggjur af því hversu fáar fréttakonur séu í útsendingum stofnunarinnar. Í ávarpi hins verðandi yfirfréttastjóra til starfsmanna BBC sagði Harding að sem nyliði hjá BBC – hann var áður ritstjóri á The Tmes – hafi það slegið hann hversu fáar fréttakonur væru í áberandi hlutveki í útsendingum. „Ég tel, sem utanaðkomandi stjórnandi, að spurningin um hversu fáar konur eru í útsendingum – þa hversu fáar eru sýnilegar á skjánum - sé klárlega málefni sem taka þarf föstum tökum,“ sagði hann.

Sjá meira hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.