Tjáningarfrelsið varðar ekki síst rétt almennings til upplýsinga

Guðmundur Pálsson • 9. október 2026
Flóki Ásgeirsson lögmaður við hljóðnema

Flóki Ásgeirsson lögmaður er gestur í þriðja þætti Blaðvarpsins. Hann ræðir tjáningarfrelsið og hvað það þýðir fyrir blaðamennsku. Tjáningarfrelsið snýst um tvennt. Annars vegar um rétt til að tjá sig og miðla upplýsingum. Hins vegar um rétt til að afla þeirra. Flóki segir síðari þáttinn jafnvel enn mikilvægari fyrir fjölmiðla.

„Til þess að við höfum einhverju að miðla, þá þurfum við auðvitað að hafa aðgang að upplýsingum og geta einhvern veginn aflað þeirra,“ segir hann. Fjölmiðlar séu fulltrúar almennings og afli upplýsinga fyrir þeirra hönd. Almenningur hafi oft ekki tök á að afla þeirra sjálfur.

Flóki fer yfir dæmi úr störfum sínum fyrir Blaðamannafélagið, sem varða aðgang blaðamanna að vettvangi og upplýsingum. Hann ræðir líka málsóknir og kærur gegn blaðamönnum, skyldur þeirra og stöðu Íslands í samanburði við hin Norðurlöndin.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.