Tveir nýir styrkir til einkarekinna fjölmiðla

Freyja Steingrímsdóttir • 15. október 2026

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um tvær nýjar stuðningsleiðir fyrir einkarekna fjölmiðla. Samtals verður 100 milljónum króna varið til þeirra í ár. Báðar eru hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla.

60 milljónir króna renna til viðbótarstuðnings við miðla sem sinna daglegri fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu og uppfylla skilyrði fjölmiðlalaga. Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember .

40 milljónir króna eru til úthlutunar úr nýjum nýsköpunar- og þróunarsjóði fjölmiðla. Hann styrkir stofnun og þróun nýrra fréttamiðla og nýsköpun innan starfandi miðla. Umsóknarfrestur er til 16. nóvember .

Blaðamannafélag Íslands hefur lengi beitt sér fyrir auknum stuðningi við einkarekna fjölmiðla. Stuðningur við nýsköpun var meðal tillagna á Lausnamóti félagsins í mars 2025. Þar bentu þátttakendur á að skortur á tíma og fjármagni héldi aftur að nýsköpun á ritstjórnum.

Nánari upplýsingar um skilyrði og umsóknir:

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.