Þrír af hverjum fjórum blaðamönnum hafa orðið fyrir áreitni eða fjandsemi – fjórðungur hefur sleppt því að fjalla um mál af ótta við viðbrögð

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 16. nóvember 2026

Um 75% íslenskra blaðamanna hafa orðið fyrir áreitni eða fjandsemi vegna fréttaflutnings af málum þar sem upplýsingaóreiða er algeng, þar af 18% oft. Rúmur fjórðungur (27%) hefur einhvern tímann ákveðið að fjalla ekki um mál vegna viðbragða sem það gæti haft í för með sér. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir Blaðamannafélag Íslands (BÍ) meðal starfandi blaðamanna. Niðurstöðurnar voru kynntar á málþingi BÍ um upplýsingaheilindi í morgun.

Sjö af hverjum tíu (71%) hafa tekið eftir mikilli aukningu á upplýsingaóreiðu í starfi sínu síðustu þrjú ár. Þá telja 57% hana mikið vandamál fyrir íslenska fjölmiðla. Um 59% telja að hún hafi dregið úr trausti almennings til fjölmiðla en 29% telja að hún hafi aukið það.

Í könnuninni segja blaðamenn að upplýsingaóreiðan komi oftast frá hagsmunahópum (33%), þá stjórnmálafólki (20%), einstaklingum (16%) og erlendum aðilum (16%).

Blaðamenn voru spurðir að því hvort þeir hefðu orðið fyrir áreitni eða fjandsemi vegna fréttaflutnings af málum þar sem upplýsingaóreiða er algeng. Alls sögðust um 75% hafa orðið fyrir áreitni eða fjandsemi. Þar af sögðust 18% hafa orðið fyrir henni mjög oft eða fremur oft. Samkvæmt bakgrunnsgreiningu Maskínu er lítill munur á kynjunum: 18,7% karla og 16,7% kvenna segjast oft verða fyrir áreitni eða fjandsemi.

Af þeim sem hafa orðið fyrir áreitni eða fjandsemi nefna flestir móðganir (57%) og árásir á samfélagsmiðlum (55%). Þá nefna 44% áreitni á netinu og 11% segjast hafa orðið fyrir hótunum.

Þegar blaðamenn voru spurðir hvort þeir hefðu einhvern tímann ákveðið að fjalla ekki um mál vegna viðbragða í sinn garð sem málið gæti haft í för með sér svöruðu rúm 27% því játandi. Samkvæmt bakgrunnsgreiningu Maskínu var hlutfallið tæplega 42% í hópi blaðamanna með stystu starfsreynsluna (minna en 5 ár).

Flestir telja sig örugga í að greina upplýsingaóreiðu

Þegar blaðamenn voru spurðir hversu öruggir þeir teldu sig í að greina á milli upplýsingaóreiðu og réttra upplýsinga sögðust 78% telja sig örugga. Nær allir (93%) hafa í starfi orðið varir við efni sem virðist búið til með gervigreind og var sett fram sem raunverulegt. Alls segjast 47% verða varir við slíkt efni mjög eða nokkuð oft.

Um 56% telja vinnustað sinn vel í stakk búinn til að greina og í framhaldinu takast á við upplýsingaóreiðu og um 33% til viðbótar telja hann í meðallagi í stakk búinn til þess. 

Sex af hverjum tíu (61%) telja mikla þörf á fræðslu fyrir starfandi blaðamenn. Oftast var staðreyndaprófun sett í fyrsta sæti (37%) og næst kom greining gervigreindarefnis (19%).

„Vandi alls samfélagsins“

„Þegar fjórðungur blaðamanna segist hafa sleppt því að fjalla um mál af ótta við viðbrögðin er það ekki einkamál blaðamanna heldur vandi alls samfélagsins. Upplýsingaóreiða snýst ekki bara um rangar fréttir. Henni fylgja áreitni og fjandsemi sem hafa bein áhrif á hvaða mál komast á dagskrá. Blaðamenn eiga ekki að þurfa að vega eigið öryggi á móti rétti almennings til upplýsinga,“ segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands.

Á málþinginu fjallaði Nic Newman frá Reuters Institute við Oxford-háskóla um áskoranir fréttamiðla vegna gervigreindar og minnkandi trausts. Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, skýrði frá fyrstu niðurstöðum NORDREN-verkefnisins um upplýsingaóreiðu á Íslandi. Að því loknu ræddu fulltrúar ritstjórna niðurstöðurnar í pallborði og Bogi Ágústsson fréttamaður hélt erindi um mikilvægi upplýsingaheilinda, trausts og vandaðrar blaðamennsku.

Um könnunina

Könnun þessi er gerð af Maskínu fyrir Blaðamannafélag Íslands (BÍ). Hún er um áhrif upplýsingaóreiðu og gervigreindar á starfsumhverfi blaðamanna og fjölmiðla á Íslandi. Könnunin var lögð fyrir félagsmenn BÍ. Tölvupóstur með könnuninni var sendur til allra 311 einstaklinga í úrtakinu. Könnunin fór fram frá 26. október til 11. nóvember 2026 og voru svarendur 171, sem gerir 55% svarhlutfall.

Niðurstöður könnunarinnar er að finna hér.


Hulda Þórisdóttir, Nic Newman, Bogi Ágústsson
Eftir Freyja Steingrímsdóttir • 9. nóvember 2026
Blaðamannafélag Íslands boðar til málþings um traust, gervigreind og upplýsingaóreiðu þriðjudaginn 17. nóv kl. 9:00 á Vox club.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Hjálmar og Lilja Dögg í hlaðvarpsstúdíói
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.