Áherslur fjölmiðla þurfa að breytast
Fjölmiðlar þurfa að einbeita sér að efni sem gervigreind ræður illa við, sýna hvernig þeir vinna og efla tengsl við lesendur frekar en að reyna að ná til sem flestra. Þetta kom fram í erindi Nic Newman, sérfræðings hjá Reuters Institute for the Study of Journalism við Oxford-háskóla og aðalhöfundar Digital News Report, á málþingi Blaðamannafélags Íslands um upplýsingaheilindi á þriðjudag.
Newman byggði erindið á nýjustu rannsóknum Reuters Institute, könnun meðal tæplega 300 stjórnenda fjölmiðla og Digital News Report, sem nær til 48 landa.
Stjórnendur fjölmiðla gera ráð fyrir að umferð frá leitarvélum á borð við Google á fréttavefi þeirra dragist saman um nærri helming á næstu fimm árum, þar sem gervigreind birtir svörin beint í leitinni. Þeir hyggjast leggja meiri áherslu á rannsóknarblaðamennsku, fréttaöflun á vettvangi, greiningu og mannlegar sögur. Þrír af hverjum fjórum ætla að auka vægi hljóðs og myndbanda.
Samfélagsmiðlar og myndbandaveitur eru nú í fyrsta sinn algengasta leiðin að fréttum í þeim 48 löndum sem Digital News Report nær til. Fréttavefir eru ekki fyrsti kostur neins aldurshóps. Norðurlöndin skera sig úr, en ungt fólk þar fylgir sömu þróun. Ísland er ekki hluti af rannsókninni en Newman taldi líklegt að staðan hér væri svipuð.
Í rannsókn Reuters Institute kom einnig fram að rúmur fjórðungur hafði nálgast efni frá fréttatengdum efnishöfundum (e. news creators) vikuna áður. Fæstir reiða sig þó eingöngu á þá. Newman sagði ungt fólk í auknum mæli treysta einstaklingum sem eru opnir um afstöðu sína frekar en hefðbundnum fjölmiðlum.
Aðeins 37% treysta flestum fréttum oftast. Hlutfallið hefur aldrei mælst lægra. Þá hafa 62% áhyggjur af því að geta ekki greint satt frá ósönnu á netinu. Gervigreind ýtir undir vandann. Newman nefndi sem dæmi fölsuð myndbönd af mótmælum gegn innflytjendum í Evrópu sem framleidd voru í stórum stíl í Asíu.
Hann benti á gagnsæi sem leið til að auka traust. Aftonbladet útskýrir fyrir lesendum hvers vegna gerendur eru nafngreindir eða ekki og BBC Verify sýnir hvernig staðreyndir eru kannaðar.
Newman sagði rekstrarvandann brýnan á Íslandi, þar sem auglýsingatekjur á netinu duga ekki fyrir öflugar ritstjórnir. Hlutfall þeirra sem greiða fyrir stafrænar fréttir hefur staðið í stað og fjölmiðlar sækja tekjur í æ fleiri áttir. Framtíðin snúist um að efla tengsl við tiltekna hópa.
Nánar
Rannsóknir Reuters Institute:
Journalism, Media and Technology Trends and Predictions 2026
The Changing Shape and New Economics of News Podcasting
Hægt er að horfa á upptöku Vísis frá málþinginu hér:



