Auglýsingatekjur íslenskra fjölmiðla nær fjórðungi lægri en fyrir áratug
Auglýsingatekjur íslenskra fjölmiðla hafa dregist saman um 3,5 milljarða króna, sem er nær fjórðungur, á síðustu tíu árum, samkvæmt útreikningum press.is úr nýjum tölum Hagstofu Íslands. Á sama tíma hafa greiðslur til erlendra miðla meira en tvöfaldast, úr 7 milljörðum króna í 16 milljarða. Íslenskir fjölmiðlar fengu um 12 milljarða árið 2025, lægstu upphæð á öldinni.
Samkvæmt Hagstofunni nam heildarauglýsingafé árið 2025 um 30,5 milljörðum króna. Af því fengu erlendir miðlar 16 milljarða (52%), íslenskir fjölmiðlar 12 milljarða (39%) og umhverfisskilti 2,3 milljarða (8%). Heildarauglýsingaféð jókst um rúman milljarð króna milli ára, en þegar tekið er tillit til verðbólgu stóð það nánast í stað. Nær öll aukningin rann til erlendra miðla. Fyrir tíu árum fengu erlendir miðlar 31% auglýsingafjárins og árið 2023 fengu þeir í fyrsta sinn meira en íslenskir fjölmiðlar.
Í tölum Hagstofu Íslands um innlenda miðla eru umhverfisskilti, kvikmyndahús og hljóðbækur talin með til innlendra miðla. Í umræðunni um rekstrargrundvöll fjölmiðla er rétt að draga tekjur umhverfisskilta frá og fjalla aðeins um auglýsingatekjur fjölmiðla. Í þessari frétt er miðað við fjölmiðla eingöngu: blöð, tímarit, útvarp, sjónvarp, vefmiðla og hlaðvörp. Tölurnar eru reiknaðar af press.is úr talnagrunni Hagstofunnar, á verðlagi ársins 2025.

Myndritið sýnir auglýsingatekjur fjölmiðla frá aldamótum, á verðlagi ársins 2025. Press.is tók það saman úr talnagrunni Hagstofunnar og merkti inn atburði á fjölmiðlamarkaði. Árið 2000 námu tekjurnar 16,3 milljörðum króna. Þær jukust á uppgangsárunum, þegar Fréttablaðið var komið til sögunnar, og náðu hámarki árið 2007 í tæpum 24 milljörðum. Eftir bankahrunið féllu þær í 13,3 milljarða árið 2009. Þær náðu sér að hluta á strik og voru 18,8 milljarðar árið 2016, sem Hagstofan rakti á sínum tíma að hluta til Evrópumótsins í knattspyrnu. Síðan hafa þær minnkað nær samfellt, á sama tíma og greiðslur til erlendra miðla hafa vaxið. Árið 2023 fóru erlendir miðlar í fyrsta sinn fram úr íslenskum fjölmiðlum.
Samdrátturinn síðustu tíu ár er allur í blöðum og tímaritum. Auglýsingatekjur dag- og vikublaða hafa dregist saman um 4,5 milljarða króna á tíu árum, eða um 71%. Sjónvarp og útvarp fá jafn mikið og fyrir tíu árum. Vefmiðlar hafa bætt við sig um milljarði og hlaðvörp hálfum milljarði, en það vegur aðeins upp hluta af samdrætti blaðanna. Árið 2007 fengu dag- og vikublöð 13,4 milljarða króna í auglýsingatekjur en 1,9 milljarða árið 2025.
Hlaðvörp eru sá íslenski miðill sem hefur vaxið hraðast síðustu ár. Auglýsingatekjur hlaðvarpa námu 525 milljónum króna árið 2025, en aðeins 12 milljónum árið 2019. Þær jukust um fimmtung milli ára og eru nú næstum jafnmiklar og auglýsingatekjur tímarita, sem fengu 604 milljónir.
Mest til Google og Facebook
Auglýsingaféð sem rennur til erlendra miðla fer að miklu leyti til tveggja fyrirtækja. Samkvæmt Hagstofunni fengu Alphabet, sem á Google og YouTube, og Meta, sem á meðal annars Facebook og Instagram, 95% af auglýsingagreiðslum sem greiddar voru með greiðslukortum.
Ekki er allt erlenda féð greitt fyrir auglýsingar sem beinast að íslenskum neytendum. Hagstofan nefnir markaðssetningu ferðaþjónustunnar erlendis sem eina skýringu, en segir óvíst hvernig féð skiptist. Press.is hefur óskað eftir frekari upplýsingum frá Hagstofunni. Hlutur erlendra miðla er þó svipaður á hinum Norðurlöndunum: 57% í Svíþjóð, 56% í Danmörku, 51% í Finnlandi og 47% í Noregi.
Á sama tíma hafa tekjur einkarekinna fjölmiðla frá notendum, það er áskriftir, lausasala og aðrar greiðslur, nánast staðið í stað: 12,7 milljarðar króna á núvirði árið 2015 og 12,9 milljarðar árið 2024. Tekjur hlaðvarpa frá hlustendum námu 206 milljónum króna árið 2024.
Heimild: Hagstofa Íslands. Raunvirðisútreikningar press.is byggja á talnagrunni Hagstofunnar og vísitölu neysluverðs án húsnæðis.



