- Félagið & fagið
- BÍ
- Faglegt
- Verðlaun & viðurkenningar
- Atvinnutorg
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Aðalfundur Blaðamannafélags Íslands árið 2026 verður haldinn þriðjudaginn 21. apríl n.k. að Síðumúla 23, 3. hæð, 108 Reykjavík og rafrænt. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 20:00.
Félagsfólk af landsbyggðinni og önnur þau sem komast ekki á staðfund geta fylgst með fundinum í streymi og tekið þátt í atkvæðagreiðslum sem verða með rafrænum hætti að þessu sinni. Nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku á fjarfundi fyrir kl 18:00 á þriðjudag 21. apríl. Þetta er liður í áætlun stjórnar um að auka aðgengi félagsfólks af landsbyggðinni að starfsemi félagsins. Tölvupóstur verður sendur á félagsfólk með frekari upplýsingum í aðdraganda fundarins.
Allt fundarfólk, hvort sem það mætir á staðfund eða skráir sig á fjarfund fær hlekk inn á sérstaka fundarsíðu sendan með sms við skráningu og þarf rafræn skilríki til að komast inn á hana. Þau sem ekki eru með rafræn skilríki eða þurfa aðstoð við að greiða atkvæði í gegnum snjallsíma geta fengið hjálp á staðnum. Atkvæðaseðlar koma til með að birtast á fundarsíðunni og lætur fundarstjóri vita hvenær sérhver atkvæðagreiðsla hefst og hvenær henni lýkur. Á fundarsíðunni verður einnig að finna tengil inn á streymi fyrir fjarfundarfólkið.
Dagskrá aðalfundar:
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins
Skýrslur frá starfsnefndum
Kosningar
Lagabreytingar
Önnur mál
Enn er hægt að gefa kost á sér til setu í eftirfarandi stjórnum og nefndum:
Aðalstjórn BÍ (formaður, aðal- og varamenn til tveggja ára)
Stjórn Menningarsjóðs BÍ, Orlofsheimilasjóðs og Endurmenntunarsjóðs (aðal- og varamenn til tveggja ára)
Stjórn Styrktarsjóðs BÍ (aðal- og varamenn til eins árs)
Siðanefnd BÍ (aðal- og varamenn til eins árs)
Dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna (aðal- og varamenn til eins árs)
Kjörnefnd (aðal- og varamenn til eins árs)
Samningaráð (aðal- og varamenn til eins árs)
Skoðunarmenn reikninga (aðal- og varamenn til eins árs)
Áhugasamir sendi póst á press@press.is.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta!