Orlofskostir

Blaðamannafélagið á og rekur fjögur orlofshús á þremur stöðum á landinu sem ætluð eru félagsmönnum. Þessi hús eru staðsett á Akureyri, Stykkishólmi og í Brekkuskógi. Að auki geta félagsmenn fengið afslátt á flugmiðum með Icelandair, afslátt af hótelgistingu, útilegukortinu og veiðikortinu.

Bókun orlofshúsa fer í gegnum orlofshúsavefinn Frímann. Þar má einnig finna nánari upplýsingar um húsin og bókunarstöðu.

Um orlofshúsin okkar:

Brekkuskógur

Í Brekkuskógi á BÍ tvö orlofshús, Stóru- og Litlu-Brekku, sem bæði eru nýuppgerð. Í Stóru-Brekku eru tvö svefnherbergi og gestahús með svefnherbergi og svefnsófa, og í Litlu-Brekku eru þrjú svefnherbergi. Í húsunum er ein stór stofa með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss er fyrir 9 í Stóru-Brekku, en fyrir 7 í Litlu-Brekku. Öll venjuleg heimilstæki og gasgrill fylgja bústöðunum. Í báðum bústöðunum eru heitir pottar. Hér má sjá kort og hnit staðsetningar húsanna í Brekkuskógi.

Akureyri

Blaðamannafélagið á íbúð að Seljahlíð 3c á Akureyri. Um er að ræða lítið raðhús sem er stofa og tvö svefnherbergi. Í hjónaherberginu er tvíbreitt stórt rúm, auk smábarnarúms og í hinu herberginu er tvíbreitt rúm. Raðhúsið er búið öllum helstu nútímaþægindum, þvottavél, sjónvarpi, nettengingu og síma og þar er sérverönd með gasgrilli og útihúsgögnum.

Stykkishólmur

BÍ býður einnig upp á orlofshús að Arnarborg 6 í útjaðri Stykkishólms. Um er að ræða glæsilegt hús sem byggt var árið 2006. Húsið er 105 fermetrar að stærð með þremur svefnherberjum og svefnlofti. Samanlagt er svefnpláss í húsinu fyrir 10-12 manns. Húsinu fylgir verönd og pottur, auk alls sem tilheyrir nútíma heimilishaldi.

BÍ býður félögum einnig afsláttarkjör vegna annarra orlofskosta:

Afsláttur af flugmiðum

Félagsmönnum gefst kostur á að kaupa gjafalykla frá Icelandair: 30 þúsund króna gjafalykill, sem félagsmenn greiða 20 þúsund fyrir. Hver félagsmaður má kaupa 4 gjafalykla á 12 mánaða tímabili. Gjafakortin eru keypt í gegnum orlofsvef, undir flipanum kort og miðar.

Afsláttur af gistingu

Félögum gefst kostur á að kaupa gistingu á afslætti á hóteli og gistiheimilum víða um landið. Nánari upplýsingar á orlofsvef undir flipanum ferðaávísanir.

Veiðikortið

Félögum gefst kostur á að kaupa veiðikortið með afslætti. Félagsmenn greiða kr. 5.500 (fullt verð er 9.900). Kortið er keypt í gegnum orlofsvef, undir flipanum kort og miðar.