Blaðvarpið

Hvernig verða fréttir til? Hvaðan færð þú fréttir? Hverjum treystirðu og hvers vegna? Umhverfi fjölmiðla og blaðamanna hefur breyst gríðarlega á undanförnum árum. Við erum stödd í miðri tæknibyltingu á miklum samfélagslegum umbrotatímum. Upplýst samfélag þarf faglega blaðamennsku, sem setur hlutina í samhengi og skýrir þá, með hag almennings að leiðarljósi.

Blaðvarpið er nýtt hlaðvarp Blaðamannafélags Íslands. Þar beinum við sjónum okkar að blaðamennsku, fjölmiðlum og tengdum málefnum. Veltum fyrir okkur aðstæðum blaðamanna og fjölmiðla, og því sem efst er á baugi í faginu. Blaðvarpið er væntanlegt á hlaðvarpsveitur í haust.

Umsjónarmenn: Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Guðmundur Pálsson.