- Félagið & fagið
- BÍ
- Faglegt
- Verðlaun & viðurkenningar
- Atvinnutorg
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Blaðamannaverðlaunin fyrir árið 2025 voru veitt við hátíðlega athöfn í Hafnarhúsi í kvöld. Verðlaununum er ætlað að heiðra framúrskarandi blaðamennsku á Íslandi og voru þau veitt í fjórum flokkum.
Blaðamannaverðlaun ársins hlaut Kjartan Kjartansson hjá Sýn fyrir fréttaskýringar um loftslagsmál á Vísir.is. Dómnefndin nefndi sérstaklega hvernig Kjartan skýrir flókin umfjöllunarefni á mannamáli án þess að afsláttur sé gefinn af fagmennsku. Hann afhjúpaði misskilning stjórnvalda á losunarmarkmiði Íslands í samstarfi við Evrópusambandið, sem leiddi til þess að íslensk stjórnvöld þurftu að endurskoða markmið sín vegna Parísarsamningsins.
Viðtal ársins hlaut Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir hjá Heimildinni fyrir viðtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Ingibjörg Dögg fylgdi Höllu í lífi og starfi um nokkurra daga skeið og gaf lesandanum nýja og áhugaverða sýn á forsetann og konuna á bak við embættið. Í viðtalinu greindi Halla frá sársaukafullri reynslu í barnæsku og kynferðisofbeldi sem hefur markað líf hennar. Dómnefndin lagði áherslu á mikilvæg skilaboð viðtalsins til þolenda um að kynferðisofbeldi þurfi ekki að skilgreina þá um ókomna tíð.
Umfjöllun ársins hlutu Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson hjá RÚV fyrir vandaða og yfirgripsmikla umfjöllun í þættinum Kveik um afleiðingar alvarlegrar e. coli-matarsýkingar sem upp kom í leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Dómnefndin tók fram að umfjöllunin varpi nýju ljósi á bæði ástæður og afleiðingar smitsins og nýti kosti myndmiðilsins vel.
Rannsóknarblaðamennska ársins hlutu Helgi Seljan og Árni Þór Theodórsson hjá RÚV fyrir umfjöllun í þættinum Kveik um umfangsmiklar njósnaaðgerðir sem stóðu yfir vikum saman haustið 2012 að undirlagi Björgólfs Thors Björgólfssonar. Afhjúpað var hvernig fylgst var með fólki sem hugðist leita réttar síns gagnvart Björgólfi, það hlerað og elt af fyrrverandi og þáverandi lögreglumönnum. Umfjöllunin leiddi til athugunar eftirlitsnefndar um störf lögreglu, persónuverndar, dómsmálaráðherra og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á verklagi lögreglu.
Dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna 2025 skipuðu Pálmi Jónasson (formaður), Arndís Þorgeirsdóttir, Brynhildur Ólafsdóttir og Steinunn Stefánsdóttir.
Blaðamannafélag Íslands óskar verðlaunahöfunum og þeim tilnefndu innilega til hamingju.
----
FRÉTT – press.is
Blaðamannaverðlaun 2025 veitt í Hafnarhúsi
Blaðamannaverðlaunin fyrir árið 2025 voru veitt við hátíðlega athöfn í Hafnarhúsi í Reykjavík í kvöld. Verðlaununum, sem Blaðamannafélag Íslands stendur að, er ætlað að heiðra framúrskarandi blaðamennsku á Íslandi. Þau voru veitt í fjórum flokkum: Blaðamannaverðlaun ársins, Viðtal ársins, Umfjöllun ársins og Rannsóknarblaðamennska ársins. Í hverju flokki voru þrír tilnefndir.
Blaðamannaverðlaun ársins: Kjartan Kjartansson, Sýn
Blaðamannaverðlaun ársins hlaut Kjartan Kjartansson hjá Sýn fyrir fréttaskýringar um loftslagsmál á Vísir.is. Dómnefndin nefndi sérstaklega hvernig Kjartan skýrir flókin umfjöllunarefni á mannamáli án þess að afsláttur sé gefinn af fagmennsku, og hvernig hann hefur sýnt elju við öflun gagna og fylgt málum vel eftir. Hann afhjúpaði misskilning stjórnvalda á losunarmarkmiði Íslands í samstarfi við Evrópusambandið, sem leiddi til þess að íslensk stjórnvöld þurftu að endurskoða markmið sín vegna Parísarsamningsins.
Aðrir tilnefndir í flokknum voru Sólrún Lilja Ragnarsdóttir hjá Morgunblaðinu fyrir ítarlega umfjöllun um neyðarástand í málefnum barna í viðkvæmri stöðu, og Þóra Tómasdóttir hjá RÚV fyrir fréttaskýringar í þættinum Þetta helst.
Viðtal ársins: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Heimildin
Viðtal ársins hlaut Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir hjá Heimildinni fyrir viðtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Ingibjörg Dögg fylgdi Höllu í lífi og starfi um nokkurra daga skeið og gaf lesandanum nýja og áhugaverða sýn á forsetann og konuna á bak við embættið. Í viðtalinu greindi Halla frá sársaukafullri reynslu í barnæsku og kynferðisofbeldi sem hefur markað líf hennar. Dómnefndin lagði áherslu á mikilvæg skilaboð viðtalsins til þolenda um að kynferðisofbeldi þurfi ekki að skilgreina þá um ókomna tíð.
Aðrir tilnefndir í flokknum voru Jakob Bjarnar Grétarsson hjá Sýn fyrir viðtal við Friðrik Ólafsson, stórmeistara í skák, í tilefni 90 ára afmælis hans, og Sunna Sæmundsdóttir hjá Sýn fyrir viðtal í Kompás við foreldra Bryndísar Klöru Óskarsdóttur, sem lést eftir stunguárás á menningarnótt 2024.
Umfjöllun ársins: Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson, RÚV
Umfjöllun ársins hlutu Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson hjá RÚV fyrir vandaða og yfirgripsmikla umfjöllun í þættinum Kveik um afleiðingar alvarlegrar e.coli-matarsýkingar sem upp kom í leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Dómnefndin tók fram að umfjöllunin varpi nýju ljósi á bæði ástæður og afleiðingar smitsins, að spurt sé óvæginna spurninga og að áður óbirt myndbönd og ljósmyndir séu sýnd. Umfjöllunin er skýr, vel fram sett og nýtir kosti myndmiðilsins vel.
Aðrir tilnefndir í flokknum voru Esther Jónsdóttir hjá Heimildinni fyrir umfjöllun um ferð hennar með hópi vísindamanna á Esjufjöll í Vatnajökli, og Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir hjá RÚV fyrir hlaðvarpsþáttaröðina Konungssinnar í Kísildal.
Rannsóknarblaðamennska ársins: Helgi Seljan og Árni Þór Theodórsson, RÚV
Rannsóknarblaðamennska ársins hlutu Helgi Seljan og Árni Þór Theodórsson hjá RÚV fyrir umfjöllun í þættinum Kveik um umfangsmiklar njósnaaðgerðir sem stóðu yfir vikum saman haustið 2012 að undirlagi Björgólfs Thors Björgólfssonar. Afhjúpað var hvernig fylgst var með fólki sem hugðist leita réttar síns gagnvart Björgólfi, það hlerað og elt af fyrrverandi og þáverandi lögreglumönnum. Umfjöllunin leiddi til athugunar eftirlitsnefndar um störf lögreglu, persónuverndar, dómsmálaráðherra og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á verklagi lögreglu.
Aðrir tilnefndir í flokknum voru Freyr Gígja Gunnarsson og Helgi Seljan hjá RÚV fyrir umfjöllun í Speglinum um viðskipti ríkislögreglustjóraembættisins við ráðgjafafyrirtæki, og Gunnar Gunnarsson og Viðar Guðjónsson hjá Morgunblaðinu og Austurglugganum fyrir umfjöllun um stöðu geðheilbrigðismála á landsvísu.
Dómnefnd