Gagnasagnir og gagnlegar fréttir - námskeið með höfundi The Data Storytelling Workbook

Heimsmynd nútímans byggir á gögnum. Að baki nær öllum stærri ákvörðunum sem stjórnvöld taka þegar kemur að stýringu samfélaga liggja gögn. Þau eru oft lykilinn að fréttum og frásögnum sem skipta mestu máli. Því er hæfni til að lesa, skilja og miðla flóknum gögnum orðin lykilfærni í blaðamennsku og víðar. Stærri gagnasöfn leiða þó ekki sjálfkrafa til betri skilnings eða upplýstari umræðu. Til þess þarf að geta unnið úr flóknum og oft þurrum gögnum, sett þau í samhengi og umbreytt þeim í skýrar og aðgengilegar sögur sem ná til fólks.

Blaðamannafélag Íslands stendur fyrir tveggja daga námskeiði í gagnasögnum (e. data storytelling) dagana 20. og 21. maí 2026 í húsakynnum félagsins í Síðumúla. Kennarinn er Anna Feigenbaum, prófessor í fjölmiðlum og stafrænum frásögnum við Háskólann í Glasgow og höfundur bókarinnar The Data Storytelling Workbook. Feigenbaum hefur sérhæft sig í því að kenna blaðamönnum og samskiptasérfræðingum hvernig vinna má úr flóknum gögnum og miðla þeim á skýran og áhrifaríkan hátt.

Á námskeiðinu fá þátttakendur innsýn í lykilhugtök gagnasagna (data storytelling), kynnast aðferðum við myndræna framsetningu gagna og fá hagnýtar æfingar sem hægt er að beita strax í starfi. Fjallað verður um hvernig finna má gögn sem erfitt er að nálgast, hvernig vinna má úr þeim á skapandi hátt og hvaða siðferðilegu álitaefni geta komið upp við miðlun gagna, til dæmis þegar fjallað er um viðkvæm málefni á borð við mannréttindi.

Námskeiðið er ætlað blaðamönnum og öðrum þeim sem vinna við miðlun upplýsinga og gagna, og eru félagar í Blaðamannafélagi Íslands.

Skráningarfrestur er til 11. maí. Pláss á námskeiðið eru takmörkuð og þátttaka telst staðfest við móttöku greiðslu.

Verð: 24.900kr. Hádegisverður er innifalinn báða daga.
Kennitala: 690372-0109
Reikningsnúmer: 0130-26-108446

Ath. að BÍ-félagar með fulla aðild geta sótt um endurgreiðslu á 75% af námskeiðsgjaldi frá Endurmenntunarsjóði.