Myndir ársins 2025

Mynd ársins 2024 eftir Golla
Mynd ársins 2024 eftir Golla
Opnun sýningar og afhending verðlauna fyrir Myndir ársins 2025 verður á laugardaginn nk. 11. apríl kl. 15:00 í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Blaðaljósmyndarafélag Íslands, sem er félag innan Blaðamannafélags Íslands, stendur fyrir sýningunni. Félagið heldur sýninguna Myndir ársins árlega þar sem valdar eru bestu myndir félagsmanna liðins árs auk þess sem verðlaun eru afhent fyrir Mynd ársins og Fréttamynd ársins.
 
Menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðherra, Logi Einarsson, opnar sýninguna og veitir verðlaun.
Léttar veitingar í boði.
 

Félagar eru sérstaklega hvattir til að mæta.