- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Gervigreind hefur algjörlega umbylt því hvernig blaðamenn vinna, allt frá þeim verkfærum sem blaðamenn nýta sér og yfir í að styðja við vinnuferla á fréttastofum og ákvarðanatöku. Eftir því sem gervigreindartækninni fleygir fram verður æ mikilvægara fyrir fréttamiðla að skilja hvernig hún virkar og hvernig megi nýta hana með árangursríkum hætti.
Þann 2. september kl. 16 að íslenskum tíma býður Knight Center for Journalism upp á ókeypis klukkustundarlangt fjarnámskeið þar sem farið verður yfir ýmislegt tengt gervigreind og blaðamennsku. Knight Center for Journalism in the Americas er leiðandi í heiminum í fjarnámskeiðum tengd blaðamennsku fyrir blaðamenn og er rekið sem sjálfstætt verkefni innan Texas-háskóla í Bandaríkjunum.
Á námskeiðinu er markmiðið að þátttakendur velti því fyrir sér með gagnrýnum hætti hvernig gervigreind passar inn í þeirra starfsumhverfi og hvernig fréttastofur geti nýtt sér hana, frekar en að skoða einstaka gervigreindarverkfæri. Reynt verður að draga upp stóru myndina í ljósi þess hvaða innviði þurfi til, hvaða þekking og færni, og hvernig fréttastofur nálgist þessa tækni og nýti sér hana á skýrari og markvissari hátt.
Námskeiðið er ætlað blaðmönnum, fréttastjórum, ritstjórum og öllum þeim sem hafa áhuga á blaðamennsku og vilja öðlast betri skilning á þeim gervigreindarkerfum sem eru að móta blaðamennsku samtímans.
Nánari upplýsingar hér.