Mál nr. 10/2025-2026

Kærandi: Gréta María Blöndal

Kærða: Erna Ýr Guðjónsdóttir, blaðamaður mbl.is

Kæruefni
Kærð er umfjöllun sem birtist á mbl.is undir fyrirsögninni „Ég er strákamamma út í gegn“,
þar sem rætt er við konu um barnmarga fjölskyldu hennar og heimilislíf.

Málsmeðferð
Kæran barst skrifstofu Blaðamannafélags Íslands 12. febrúar 2026. Siðanefnd tók málið fyrir á
fundi 13. febrúar og samþykkti að óska eftir andsvörum kærða. Nefndin fjallaði aftur um málið á
fundi 3.mars. Andsvör bárust nefndinni 4. mars og var málið afgreitt á fundi 11. mars. Undir rekstri
málsins lét Jóhann Óli Eiðsson af störfum í Siðanefnd og Brynhildur Ólafsdóttir, varamaður, tók
sæti hans frá og með 10. mars.

Málavextir
Í grein sem birtist á mbl.is þann 8. febrúar 2026 er rætt við konu um fjölskyldulíf hennar og
barnmargt heimili. Í umfjölluninni eru birtar myndir af nokkrum drengjum á heimilinu og er einn
þeirra sonur kæranda. Kærandi telur að ekki hafi verið gætt nægilegrar varúðar við umfjöllun um
ólögráða barn. Sonur hennar sé auðþekkjanlegur á myndum en ekki komi skýrt fram að
viðmælandinn í greininni sé ekki líffræðileg móðir barnsins. Ekki hafi verið gætt
nægilegrar varfærni gagnvart barninu og framsetning fjölskyldutengsla hafi ekki verið nægilega
nákvæm eða sanngjörn. Að mati kærandi uppfyllir framsetningin ekki kröfur um nákvæmni og
sanngirni í fjölmiðlaumfjöllun og geti haft áhrif á sjálfsmynd barnsins og tengslamyndun þess.
Kærandi telur mikilvægt að gæta sérstakrar varfærni í ljósi þess að mál sem varðar umgengni og
tengsl barnsins við sig og systkini þess sé til meðferðar hjá sýslumanni. Í slíkum aðstæðum geti
opinber framsetning á röngum eða villandi fjölskyldutengslum haft frekari áhrif á stöðu barnsins
og tengslamyndun.


Í andsvörum kærðu er því er hafnað að umfjöllunin hafi brotið gegn ákvæðum siðareglna
Blaðamannafélags Íslands. Greinin hafi fjallað um fjölskyldulíf með stóran barnahóp og
áskoranir sem því fylgja. Fimm börn séu á heimili viðmælanda og eiginmanns hennar, en þau hafi
ekki verið sérstaklega rædd eða tilgreind að öðru leyti en sem heild.


Kærða mótmælir því að framsetningin á fjölskyldutengslum í greininni sé röng eða villandi af því
ekki hafi verið tilgreint sérstaklega að eitt barnanna á heimilinu væri ekki líffræðilegur sonur
viðmælandans. Óeðlilegt hefði verið að nafngreina hann sérstaklega og setja í ólíka stöðu en
aðra í fjölskyldunni. Viðmælandinn, eiginmaður hennar og börn þeirra séu „fjölskylda í öllum
skilningi þess orðs“, hvað sem líði ágreiningi milli kæranda og blóðföður um umgengni.
Alvanalegt sé að fjallað sé um fjölskyldulíf fólks án þess að greint sé sérstaklega á milli barna
með þeim hætti sem kærandi leggi til. Það sé gert meðal annars með hagsmuni barnsins að
leiðarljósi.


Þá er tekið fram að blaðamaðurinn hafi mátt ganga að því sem vísu að heimild væri fyrir birtingu
mynda í greininni, þar sem eiginmaður viðmælandans og blóðfaðir drengsins hafi verið á hluta
myndanna. Einnig kemur fram í andsvörum kærðu að kærandi hafi sjálf tekið fram í samskiptum
sínum við blaðamanninn eftir að fréttin birtist, að hún færi ekki með forræði drengsins.
Umfjöllun nefndarinnar


Kæra í málinu uppfyllir öll skilyrði málsmeðferðarreglna Siðanefndar Blaðamannafélagsins og
var málið því tekið efnislega fyrir.


Kærandi tiltekur ekki hvaða grein siðareglna hún telur blaðamann hafa brotið, en telur að
nákvæmni og sanngirni hafi ekki verið gætt í framsetningu. Því kemur helst til álita 2. grein
siðareglnanna þar sem meðal annars er kveðið á um að blaðamaður skuli setja upplýsingar fram
„á heiðarlegan og sanngjarnan hátt samkvæmt bestu vitund hverju sinni, meðal annars með því
að leita andstæðra sjónarmiða þegar við á.“


Uppistaða greinarinnar er viðtal við konu um fjölskyldu- og heimilislíf hennar. Ekki er fjallað
sérstaklega um neitt af börnunum fimm sem á heimilinu búa, heldur um hópinn sem slíkan og þá
ánægju og áskoranir sem því fylgja að ala upp svo stóran barnahóp.
Að mati Siðanefndar mátti blaðamaður gera ráð fyrir því að heimilt væri að birta myndirnar,
einkum í ljósi þess að eiginmaður viðmælanda og forráðamaður drengsins var á hluta þeirra. Þar
að auki verður ekki ráðið af kærunni að kærandi telji það brot á siðareglum Blaðamannafélagsins
að birt hafi verið mynd af barninu, heldur lítur kæran fyrst og fremst að því að ekki komi skýrt
fram að viðmælandinn í greininni sé ekki líffræðileg móðir þess.


Siðanefnd tekur undir sjónarmið kærðu um að í samhengi umfjöllunarinnar hefði verið óeðlilegt
að tilgreina eitt barnanna og taka fram að viðmælandinn væri ekki líffræðileg móðir þess.
Siðanefnd fellst ekki á að umfjöllunin hafi verið ósanngjörn eða ónákvæm.
Í samræmi við framangreint getur nefndin ekki fallist á það með kæranda að kærða hafi gerst
brotleg við siðareglur Blaðamannafélagsins með umfjöllun sinni.


Úrskurðarorð
Kærða, Erna Ýr Guðjónsdóttir telst ekki hafa brotið gegn siðareglum Blaðamannafélags Íslands.
Undirritunarsíða

Pálmi Jónasson
Ásgeir Þór Árnason
Valgerður Anna Jóhannsdóttir
Emma Björg Eyjólfsdóttir
Brynhildur Kristín Ólafsdóttir