Mál nr. 10/2025-2026

Mál nr.: 10/2025–2025
Kærandi: Gréta María Blöndal
Kærða: Erna Ýr Guðjónsdóttir, blaðamaður mbl.is

Kæruefni
Kærð er umfjöllun sem birtist á mbl.is undir fyrirsögninni „Ég er strákamamma út í
gegn“, þar sem rætt er við konu um barnmarga fjölskyldu hennar og heimilislíf.

Málsmeðferð
Kæran barst skrifstofu Blaðamannafélags Íslands 12. febrúar 2026. Siðanefnd tók málið fyrir
á fundi 13. febrúar og samþykkti að óska eftir andsvörum kærða. Nefndin fjallaði aftur um
málið á fundi 3.mars. Andsvör bárust nefndinni 4. mars og var málið afgreitt á fundi 11. mars.
Undir rekstri málsins lét Jóhann Óli Eiðsson af störfum í Siðanefnd og Brynhildur Ólafsdóttir,
varamaður, tók sæti hans frá og með 10. mars.

Málavextir
Í grein sem birtist á mbl.is þann 8. febrúar 2026 er rætt við konu um fjölskyldulíf hennar og
barnmargt heimili. Í umfjölluninni eru birtar myndir af nokkrum drengjum á heimilinu og er
einn þeirra sonur kæranda. Kærandi telur að ekki hafi verið gætt nægilegrar varúðar við
umfjöllun um ólögráða barn. Sonur hennar sé auðþekkjanlegur á myndum en ekki komi skýrt
fram að viðmælandinn í greininni sé ekki líffræðileg móðir barnsins. Ekki hafi verið gætt
nægilegrar varfærni gagnvart barninu og framsetning fjölskyldutengsla hafi ekki verið
nægilega nákvæm eða sanngjörn. Að mati kærandi uppfyllir framsetningin ekki kröfur um
nákvæmni og sanngirni í fjölmiðlaumfjöllun og geti haft áhrif á sjálfsmynd barnsins og
tengslamyndun þess. Kærandi telur mikilvægt að gæta sérstakrar varfærni í ljósi þess að mál
sem varðar umgengni og tengsl barnsins við sig og systkini þess sé til meðferðar hjá
sýslumanni. Í slíkum aðstæðum geti opinber framsetning á röngum eða villandi
fjölskyldutengslum haft frekari áhrif á stöðu barnsins og tengslamyndun.
Í andsvörum kærðu er því er hafnað að umfjöllunin hafi brotið gegn ákvæðum siðareglna
Blaðamannafélags Íslands. Greinin hafi fjallað um fjölskyldulíf með stóran barnahóp og
áskoranir sem því fylgja. Fimm börn séu á heimili viðmælanda og eiginmanns hennar, en þau
hafi ekki verið sérstaklega rædd eða tilgreind að öðru leyti en sem heild.
Kærða mótmælir því að framsetningin á fjölskyldutengslum í greininni sé röng eða villandi af
því ekki hafi verið tilgreint sérstaklega að eitt barnanna á heimilinu væri ekki líffræðilegur
sonur viðmælandans. Óeðlilegt hefði verið að nafngreina hann sérstaklega og setja í ólíka
stöðu en aðra í fjölskyldunni. Viðmælandinn, eiginmaður hennar og börn þeirra séu
„fjölskylda í öllum skilningi þess orðs“, hvað sem líði ágreiningi milli kæranda og blóðföður
um umgengni. Alvanalegt sé að fjallað sé um fjölskyldulíf fólks án þess að greint sé
sérstaklega á milli barna með þeim hætti sem kærandi leggi til. Það sé gert meðal annars
með hagsmuni barnsins að leiðarljósi.
Þá er tekið fram að blaðamaðurinn hafi mátt ganga að því sem vísu að heimild væri fyrir
birtingu mynda í greininni, þar sem eiginmaður viðmælandans og blóðfaðir drengsins hafi
verið á hluta myndanna. Einnig kemur fram í andsvörum kærðu að kærandi hafi sjálf tekið
fram í samskiptum sínum við blaðamanninn eftir að fréttin birtist, að hún færi ekki með
forræði drengsins.

Umfjöllun nefndarinnar
Kæra í málinu uppfyllir öll skilyrði málsmeðferðarreglna Siðanefndar Blaðamannafélagsins og
var málið því tekið efnislega fyrir.
Kærandi tiltekur ekki hvaða grein siðareglna hún telur blaðamann hafa brotið, en telur að
nákvæmni og sanngirni hafi ekki verið gætt í framsetningu. Því kemur helst til álita 2. grein
siðareglnanna þar sem meðal annars er kveðið á um að blaðamaður skuli setja upplýsingar
fram „á heiðarlegan og sanngjarnan hátt samkvæmt bestu vitund hverju sinni, meðal annars
með því að leita andstæðra sjónarmiða þegar við á.“
Uppistaða greinarinnar er viðtal við konu um fjölskyldu- og heimilislíf hennar. Ekki er fjallað
sérstaklega um neitt af börnunum fimm sem á heimilinu búa, heldur um hópinn sem slíkan og
þá ánægju og áskoranir sem því fylgja að ala upp svo stóran barnahóp.
Að mati Siðanefndar mátti blaðamaður gera ráð fyrir því að heimilt væri að birta myndirnar,
einkum í ljósi þess að eiginmaður viðmælanda og forráðamaður drengsins var á hluta þeirra.
Þar að auki verður ekki ráðið af kærunni að kærandi telji það brot á siðareglum
Blaðamannafélagsins að birt hafi verið mynd af barninu, heldur lítur kæran fyrst og fremst að
því að ekki komi skýrt fram að viðmælandinn í greininni sé ekki líffræðileg móðir þess.
Siðanefnd tekur undir sjónarmið kærðu um að í samhengi umfjöllunarinnar hefði verið
óeðlilegt að tilgreina eitt barnanna og taka fram að viðmælandinn væri ekki líffræðileg móðir
þess. Siðanefnd fellst ekki á að umfjöllunin hafi verið ósanngjörn eða ónákvæm.
Í samræmi við framangreint getur nefndin ekki fallist á það með kæranda að kærða hafi gerst
brotleg við siðareglur Blaðamannafélagsins með umfjöllun sinni.

Úrskurðarorð
Kærða, Erna Ýr Guðjónsdóttir telst ekki hafa brotið gegn siðareglum Blaðamannafélags
Íslands.

Pálmi Jónasson, formaður
Ásgeir Þór Árnason
Valgerður Anna Jóhannsdóttir
Emma Björg Eyjólfsdóttir
Brynhildur Kristín Ólafsdóttir