Mál nr. 2/2026-2027

Kærandi:

Björn Ingi L. Jónsson

Kærðu:

Andrés Magnússon

Kæruefni:

Kærð er umfjöllun Andrésar Magnússonar á mbl.is undir fyrirsögninni „Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg“ Kærandi telur umfjöllunina hafa falið í sér brot gegn 1, 2. og 6. grein siðareglna blaðamanna.

Málsmeðferð:

Kæra barst skrifstofu BÍ 09.07.2026. Ákveðið var samdægurs að benda kæranda á augljósa vankanta í kærunni og gefa kæranda tækifæri á að lagfæra þá í samræmi við málsmeðferðarreglur og leiðbeiningar á kærueyðublaði. Kærandi svaraði samdægurs en breytti kærunni ekki í samræmi við ábendingar. Siðanefnd fjallaði um málið á fundi 13.07.2026 og kvað í kjölfarið upp úrskurð.

Málavextir:

Kærandi telur að í fréttinni sé skoðun Rob Jetten forsætisráðherra Hollands um mögulegar undanþágur eða sérlausnir séu settar fram sem staðreynd. Þannig „virðist blaðamaður vísvitandi reyna að villa fyrir opinberri umræðu með orðavali sínu.“

Umfjöllun nefndarinnar:

Í málsmeðferðarreglum Siðanefndar og sérstöku kærublaði sem kærendur fylla út kemur skýrt fram hvað þurfi að liggja fyrir svo kæra geti verið tekin til umfjöllunar. Kærandi þarf að hafa leitað leiðréttingar hjá viðkomandi miðli. Hann þarf að vera aðili máls eða hafa ríkra hagsmuna að gæta. Kæruefnið skal vera afmarkað með augljósum hætti og hin kærða umfjöllun skal fylgja með kærunni. Kæran þarf að berast innan tveggja mánaða frá birtingu efnisins.

Úrskurðarorð:

Málinu er vísað frá Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands.

 

Vandséð var að kærandi væri aðili þessa máls og ekki kom fram í kærunni að leitað hefði verið leiðréttingar. Kærandi var því gefinn kostur á að lagfæra kæruna. Í svari segir kærandi að hann hafi sent blaðamanninum póst sem þó fylgir ekki enda telji hann leiðréttingarkröfuna aðeins eiga við „ef skrif blaðamanna varði aðila beint.“ Hann viðurkennir einnig í svarinu að hann sé ekki aðili málsins. „Nú varðar þetta mál mig ekki persónulega en varðar upplýsta umræðu...“

Siðanefnd telur kæranda ekki fullnægja málsmeðferðarreglum við meðferð kæra vegna meintra brota á Siðareglum Blaðamannafélags Íslands og því beri að vísa málinu frá að svo stöddu.

Pálmi Jónasson, formaður Siðanefndar
Valgerður Anna Jóhansdóttir
Oddur Ástráðsson
Ásgeir Þór Árnason
Emma Björg Eyjólfsdóttir