Mál nr. 3/2026-2027

Kærandi:

Kristinn Fjeldsted Guðnason

Kærðu:

Mbl.is

Kæruefni:

Kærð er umfjöllun mbl.is frá 13. apríl 2023 undir fyrirsögninni „Dæmdir fyrir ofbeldi og að neyða mann ofan í Elliðaár“. Kærandi telur umfjöllunina hafa falið í sér brot gegn 3. grein siðareglna blaðamanna þar sem ekki hafi verið orðið við beiðni um leiðréttingu.

Málsmeðferð:

Kæra barst skrifstofu BÍ 13.07.2026. Ákveðið var degi síðar að benda kæranda á augljósa vankanta í kærunni og vísað í málsmeðferðarreglur og leiðbeiningar á kærueyðublaði. Kærandi svaraði samdægurs og óskaði eftir úrskurði án þess að breyta kærunni. Siðanefnd fjallaði um málið á fundi 17.07.2026 og kvað í kjölfarið upp úrskurð.

Málavextir:

Kærandi telur að í umræddri frétt sé rangfærsla sem fáist ekki leiðrétt og að auki sé nafn hans ekki birt í þeim dómi sem fréttin fjallar um. Kærandi segir að miðillinn hafi ekki brugðist við kröfu um leiðréttingu. Í skjáskoti af tölvupósti frá kæranda til ritstjórnar mbl.is óskar hann eftir að nafn hans sé tekið úr fréttinni enda hafi hvorki DV né RÚV birt nöfn þeirra sem dæmdir voru í viðkomandi máli. Kæranda var bent á að kæran samræmdist illa málsmeðferðarreglum Siðanefndar og leiðbeiningum sem fram koma á kærublaði. Í svari sagði hann brotið viðvarandi þar sem fréttina mætti enn finna á netinu. Einnig að kæran kæmi svona seint fram þar sem kærandi hafi ekki vitað fyrr að hann gæti gert athugasemd við þessa birtingu.

Umfjöllun nefndarinnar:

Í málsmeðferðarreglum Siðanefndar og sérstöku kærublaði sem kærendur fylla út kemur skýrt fram hvað þurfi að liggja fyrir svo kæra geti verið tekin til umfjöllunar. Kærandi þarf að hafan leitað leiðréttingar hjá viðkomandi miðli. Hann þarf að vera aðili máls eða hafa ríkra hagsmuna að gæta. Kæruefnið skal vera afmarkað með augljósum hætti og hin kærða umfjöllun skal fylgja með kærunni. Kæran þarf að berast innan tveggja mánaða frá birtingu efnisins og ekki má reka málið samtímis fyrir almennum dómstólum.

Umrædd frétt er frá 13. apríl 2023 og því langt fyrir utan þann tveggja mánaða frest sem gefinn er frá birtingu efnisins. Afrit eða vefslóð umræddrar fréttar fylgir ekki með kærunni.

Siðanefnd telur kæruna ekki fullnægja málsmeðferðarreglum við meðferð kæra vegna meintra brota á Siðareglum Blaðamannafélags Íslands og því beri að vísa málinu frá að svo stöddu.

Úrskurðarorð:

Málinu er vísað frá Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands.

Reykjavík 17.07.2026
Pálmi Jónasson, formaður
Ásgeir Þór Árnason
Emma Björg Eyjólfsdóttir
Valgerður Anna Jóhannsdóttir
Oddur Ástráðsson