Mál nr. 4/2026-2027

Kærandi: Ko Ko Latt

Kærðu: RÚV

Kæruefni: Kærð er umfjöllun í fréttaþættinum „Þetta helst“ 8. apríl 2026 sem fjallaði um skipun Ko Ko Latt sem heiðursræðismanns Íslands í Mjanmar. Kærandi segir að þar séu ásakanir frá „Justice For Myanmar“ séu birtar án þess að haft hafi verið samband við hann eða honum gefinn kostur á að koma málstað sínum á framfæri.

Málsmeðferð: Kæra barst skrifstofu BÍ 12.07.2026. Ákveðið var að benda kæranda á mögulega vankanta í kærunni og vísað í málsmeðferðarreglur og leiðbeiningar á kærueyðublaði. Kærandi svaraði 16.07.2026 og óskaði eftir úrskurði án þess að breyta kærunni. Siðanefnd fjallaði um málið á fundum 21.07.2026 og 28.07.2026 og kvað í kjölfarið upp úrskurð.

Málavextir: Kærandi er stjórnarformaður KK Business Group. Hann telur að í umfjöllun í fréttaþættinum „Þetta helst“ í umsjón Inga Freys Vilhjálmssonar séu ásakanir samtakanna „Justice for Myanmar“ settar fram sem staðreyndir án þess að honum hafi verið gefinn kostur á viðbrögðum eða andsvörum. Í samskiptum hans við RÚV kemur fram að hann óski eftir leiðréttingum og bendir á að umfjöllun geti varðað við margvísleg lagaákvæði, íslensk og alþjóðleg og að hann hafi ráðið lögmannsstofu til að gæta réttar síns. Kæranda var bent á að kæran samræmdist hugsanlega ekki málsmeðferðarreglum Siðanefndar og leiðbeiningum sem fram koma á kærublaði. Í svari óskaði hann eftir úrskurði án þess að breyta kærunni.

Umfjöllun nefndarinnar: 2 Í málsmeðferðarreglum Siðanefndar og sérstöku kærublaði sem kærendur fylla út kemur skýrt fram hvað þurfi að liggja fyrir svo kæra geti verið tekin til umfjöllunar. Kærandi þarf að hafa leitað leiðréttingar hjá viðkomandi miðli. Hann þarf að vera aðili máls eða hafa ríkra hagsmuna að gæta. Kæruefnið skal vera afmarkað með augljósum hætti og hin kærða umfjöllun skal fylgja með kærunni. Kæran þarf að berast innan tveggja mánaða frá birtingu efnisins og ekki má reka málið samtímis fyrir almennum dómstólum. Umrædd umfjöllun er frá 8. apríl 2026 og því utan þess tveggja mánaða frest sem gefinn er frá birtingu efnisins. Kærunni er því vísað frá Siðanefnd.

Úrskurðarorð: Málinu er vísað frá Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands. Reykjavík 28.07.2026 

Pálmi Jónasson, formaður
Ásgeir Þór Árnason
Emma Björg Eyjólfsdóttir
Valgerður Anna Jóhannsdóttir
Oddur Ástráðsson