Mál nr. 5/2025-2026

Kæruefni:
Kærð er umfjöllun Rögnu Gestsdóttur á dv.is 9. maí 2025. Að öllum líkindum er það
frétt undir yfirskriftinni „Minnst sjö hafa kært Írisi Helgu fyrir umsáturseinelti“ en þar er vitnað í
frétt Heimildarinnar. Í kærunni segir að í umræddri frétt hafi allar efnisgreinar siðareglna verið
brotnar og beiðni um leiðréttingu hafi ekki verið svarað.

Málsmeðferð:
Kæran barst skrifstofu BÍ 22.05.2025. Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands fékk málið sent degi
síðar. Kæran uppfyllti augljóslega ekki málsmeðferðarreglur Siðanefndar og var án nokkurra
fylgigagna. Kæranda hefur áður verið gefinn kostur á að lagfæra kæru vegna þess í máli nr. 8 2024-
2025 án þess að brugðist væri við því. Kæru í máli nr. 9 2024-2025 var vísað frá af sömu sökum.
Siðanefnd afgreiddi málið á fundi 27.05.2025.

Málavextir:
Í kærunni segir að í umræddum fréttum hafi allar efnisgreinar siðareglna verið brotnar og að beiðni
um leiðréttingu hafi ekki verið svarað.

Umfjöllun nefndarinnar:
Í málsmeðferðarreglum Siðanefndar og sérstöku kærublaði sem kærendur fylla út kemur skýrt
fram hvað þurfi að liggja fyrir svo kæra geti verið tekin til umfjöllunar. Kæruefni skal vera
afmarkað með augljósum hætti. Kærandi þarf að hafa leitað leiðréttingar hjá viðkomandi miðli.
Hann þarf að vera aðili máls eða hafa ríkra hagsmuna að gæta. Kæran þarf að berast innan tveggja
mánaða frá birtingu efnisins. Og kærandi þarf að láta hina kærðu umfjöllun fylgja með kærunni.
Kæranda hefur áður verið bent á annmarka í kæru (mál nr. 8 2024-2025) án þess að það skilaði
tilætluðum árangri. Siðanefnd telur kæruna ekki fullnægja málsmeðferðarreglur við meðferð kæra
vegna meintra brota á Siðareglum Blaðamannafélags Íslands og því beri að vísa málinu frá.

Úrskurðarorð:
Málinu er vísað frá Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands.

Reykjavík 27.05.2025
Pálmi Jónasson, formaður
Ásgeir Þór Árnason
Emma Björg Eyjólfsdóttir
Valgerður Anna Jóhannsdóttir
Jóhann Óli Eiðsson