- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Kærendur:
Bergsnös ehf. og Finnur Björn Harðarson
Kærði:
Ólafur E. Jóhannsson, blaðamaður Morgunblaðsins.
Kæruefni:
Kærðar eru sex fréttir sem birtust í Morgunblaðinu á tímabilinu 6.-9. júlí 2026 og
fjölluðu um málefni leigutakans að stangveiðiréttinum í Stóru-Laxá og fyrirsvarsmann félagsins,
Finn Björn Harðarson. Kærendur telja að í umfjölluninni hafi blaðamaður brotið gegn 2. og 6.
grein siðareglna blaðamanna þar sem umfjöllunin hafi ekki verið hlutlaus, ekki hafi verið gerður
greinarmunur á staðreyndum og skoðunum, með því að setja fram órökstuddar ásakanir, setja
ekki fram upplýsingar á heiðarlegan og sanngjarnan hátt og leita ekki andstæðra sjónarmiða.
Málsmeðferð:
Kæra barst skrifstofu BÍ 15.07.2026. Samkvæmt málsmeðferðarreglum siðanefndar BÍ skal
kærandi hafa leitað leiðréttingar mála sinna hjá viðkomandi miðli. Ekki var hægt að sjá að slíkt
hafi verið gert og því ákvað Siðanefnd á fundi þann 17. júlí 2026 að kalla eftir frekari skýringum
frá kærendum. Svar barst nefndinni 6. ágúst þar sem kærendur gerðu grein fyrir því að þeir hefðu
ekki talið það bæta stöðu sína að leita leiðréttinga áður en kæran var lögð fram. Siðanefnd féllst á
þessar skýringar og ákvað á fundi samdægurs að senda málið til andsvara.
Þann 20. ágúst barst svar frá kærða þar sem óskað var eftir fresti til að skila andsvörum, sem
Siðanefnd samþykkti á fundi sínum þann sama dag. Andsvör bárust 31. ágúst.
Í andsvörum gerir kærði kröfu um að málinu verði vísað frá Siðanefnd, enda sé kærði ekki félagi
í Blaðamannafélagi Íslands og sé því ekki bundinn af reglum þess. Í málsmeðferðarreglum
Siðanefndar kemur þó skýrt fram að aðild að BÍ sé engin forsenda þess að Siðanefnd úrskurði í
málum sem þessu og eru ótal fordæmi þess sem spanna marga áratugi. Siðanefnd tók málið því
til efnislegrar meðferðar og ræddi málið á fundum sínum 3. september, 10. september og 29.
september. Í kjölfarið kvað siðanefnd upp úrskurð.
Undir rekstri málsins vék Ásgeir Þór Árnason sæti vegna vanhæfis og Friðrik Þór Guðmundsson,
varamaður, tók sæti hans við afgreiðslu málsins.
Málavextir:
Rök kæranda:
Kærðar eru sex fréttir sem kærendur telja að eigi það sameiginlegt að fjallað sé um kærendur
með neikvæðum hætti. Helst telja kærendur umfjöllunina brjóta gegn 2. og 6. gr. siðareglna
blaðamanna.
Í kæru er því lýst að engin tilraun hafi verið gerð til að hafa samband við kærendur áður en
umfjöllunin var birt. Kærendur telja að þar með hafi blaðamaður brotið 2. gr. siðareglna
blaðamanna þar sem segir að „blaðamaður [skuli] leita andstæðra sjónarmiða þar sem við á.“
Kærendur telja kærða hafa brotið þessa grein siðareglna í öllum þeim fréttum sem kærðar eru. Í
kæru kemur fram að það sé aðalatriði í kærunni að blaðamaður hafi ekki haft samband við kærða
áður en fréttirnar voru birtar.
Þá telja kærendur að umfjöllunin í heild brjóti gegn 2. og 6. gr. siðareglna þar sem hún sé
einhliða. Blaðamaður geri ekki greinarmun á staðreyndum og skoðunum heldur birti órökstuddar
ásakanir landeiganda á hendur kærendum, án þess að leita andstæðra sjónarmiða. Í fréttunum séu
rangfærslur og að þær séu ekki skrifaðar samkvæmt bestu vitund blaðamanns. Umfjöllunin sé
hvorki heiðarleg né sanngjörn eins og kveðið er á um í siðareglum blaðamanna.
Andsvör kærða:
Í andsvörum frá kærða kemur fram að umfjöllun Morgunblaðsins byggðist á skriflegum gögnum
sem blaðamaður hafði aðgang að og ummælum viðmælenda. Umfjöllunin um efni gagnanna hafi
veið sanngjörn og heiðarleg.
Kærði bendir líka á að samkvæmt orðalagi 2. gr. siðareglna sé það matsatriði hvenær skuli leita
andstæðra sjónarmiða. Fréttastjóri Morgunblaðsins hafi haft samband við kærða 7. júlí sem
vísaði á formann Stóru-Laxárdeildar Veiðifélags Árnesinga, Esther Guðjónsdóttur. Sjónarmið
hennar hafi komið fram í Morgunblaðinu 10. júlí. Einnig hafi verið haft samband við lögmann
kæranda sem vildi ekki tjá sig. Þá hafði fréttastjóri falið öðrum blaðamanni Morgunblaðsins að
ræða við Finn, en hann vildi ekki tjá sig við hana. Þannig hafi kærendum verið gefinn kostur á að
koma sjónarmiðum sínum á framfæri, en þeir kosið að gera það ekki.
Kærði telur því að ekki hafi verið brotið gegn siðareglum blaðamanna. Umfjöllunin hafi byggst á
gögnum og einungis hafi verið fjallað um þær upplýsingar sem finna mátti í þeim. Þá sé ekki
hægt að lesa það út úr siðareglum blaðamanna að andstæð sjónarmið þurfi að liggja fyrir og
birtast samhliða fyrstu frétt. Þá hafi kærendum gefist kostur á að koma sjónarmiðum sínum á
framfæri.
Umfjöllun nefndarinnar:
Umfjöllunin í heild sinni er kærð vegna skorts á heiðarleika og sanngirni í framsetningu.
Siðanefnd telur að ekki sé hægt að líta fram hjá því að blaðamaður byggir umfjöllun sína á
heimildum, ýmist skriflegum gögnum eða ummælum viðmælenda. Í umfjölluninni koma hins
vegar fram alvarlegar ásakanir á hendur kæranda og því enn brýnna en ella að leitað sé andstæðra
sjónarmiða og kæranda gefinn kostur á að bregðast við umfjölluninni.
Í kærunni er það aðalatriði að andstæðra sjónarmiða hafi ekki verið leitað í upphafi. Þegar lagt er
mat á það hvort og hvenær eigi að leita andstæðra sjónarmiða þarf að horfa til alvarleika þeirra
ásakana sem settar eru fram. Að mati siðanefndar hefði verið æskilegt að andstæð sjónarmið
kæmu fram fyrr í hinni kærðu umfjöllun, helst ekki síðar en samhliða þriðju frétt sem birtist þann
7. júlí, eða daginn eftir. Samkvæmt andsvörum kæranda var andstæða sjónarmiða ekki leitað fyrr
en fréttastjóri Morgunblaðsins fól öðrum blaðamanni en kærða að gera það eftir birtingu þriðju
fréttar þann 7. júlí. Þá hafi verið haft samband við þrjá einstaklinga sem höfðu andstæðra
hagsmuna að gæta, en aðeins einn þeirra hafi þegið viðtal. Hvorki kærandi né lögmaður hans hafi
kosið að koma sjónarmiðum sínum á framfæri eftir að hafa fengið til þess tækifæri.
Hvergi kemur fram í umfjöllun Morgunblaðsins að gerð hafi verið tilraun til að ná tali af
kæranda en hann ekki viljað tjá sig. Að mati siðanefndar hefði verið heiðarlegra gagnvart
lesendum að gera grein fyrir því að reynt hafi verið að leita þeirra sjónarmiða, en kærandi ekki
viljað tjá sig.
Þó eðlilegt hefði verið að leita andstæðra sjónarmiða fyrr, í ljósi alvarleika þeirra ásakana sem
koma fram í fréttaflutningi, verður heldur ekki litið fram hjá því að kærandi þáði ekki að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri þegar slíkt bauðst.
Siðanefnd hefur almennt ekki gert kröfu um að andstæðra sjónarmiða sé leitað strax í upphafi.
Að mati Siðanefndar varð brýn þörf til að leita andstæðra sjónarmiða þegar þriðja fréttin sem
innihélt alvarlegustu ásakanirnar birtist þann 7. júlí eða strax í kjölfarið. Haft var samband við
kærendur og leitað eftir sjónarmiðum þeirra eftir birtingu þriðju fréttar, en þeir kusu að tjá sig
ekki við blaðamann. Þó að mat siðanefndar sé að æskilegra hefði verið að leita andstæðra
sjónarmiða samhliða þriðju frétt, einkum í ljósi þess hversu alvarlegar ásakanir birtust á hendur
kæranda í umfjölluninni, er mat siðanefndar að það feli ekki í sér eiginlegt brot á siðareglum
blaðamanna.
Úrskurðarorð:
Kærði, Ólafur E. Jóhannsson, telst ekki hafa brotið gegn siðareglum Blaðamannafélags Íslands.
Reykjavík 29.09.2026
Pálmi Jónasson, formaður
Oddur Ástráðsson
Emma Björg Eyjólfsdóttir
Valgerður Anna Jóhannsdóttir
Friðrik Þór Guðmundsson