Mál nr. 6/2026-2027

Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands
Mál nr. 6/2026-2027

Kærandi:
N.N.

Kærðu:
Ágúst Borgþór Sverrisson og DV.

Kæruefni:
Umfjöllun DV þann 28. júlí 2026 um kæranda.

Málsmeðferð:
Kæran barst Siðanefnd með tölvupósti kæranda 30. júlí 2026. Siðanefnd óskaði eftir andsvörum
kærðu, sem bárust Siðanefnd 12. ágúst 2026. Siðanefnd tók málið fyrir á fundi sínum 18. ágúst 2026
og kveður í kjölfarið upp úrskurð þennan.

Málavextir:
Kæra skv. kæruskjali tekur til heildarumfjöllunar DV í grein, sem birtist hinn 28. júlí 2026, og fjallar um
að kærandi hafi óskað eftir að komast í tiltekinn lokaðan hóp á Facebook, þar sem þolendum
kynferðisofbeldis er veitt skjól til að deila reynslu sinni. Af rökstuðningi kæranda má greina að hann
geri sérstakar athugasemdir við eftirfarandi atriði í umfjölluninni; að vísað sé til einhliða frásagnar
stofnanda hópsins um að kærandi hafi gert grein fyrir sér en ekki siglt undir fölsku flaggi, að fréttin
hafi verið mikið til tilbúin þegar blaðamaður hefði haft samband við kæranda vegna vinnslu hennar,
að fréttamatið í málinu sé mjög sérstakt vegna þess að blaðamaður hafi byggt á einhliða gögnum
þrátt fyrir að hafa fengið upplýsingar um „hina hlið málsins“ frá kæranda og að með fréttinni hafi
verið dregnar á flot 7-10 ára gamlar fréttir vegna dóms sem kærandi hlaut árið 2014 fyrir
kynferðislega áreitni og vörslu barnakláms og var skilorðsbundinn til 5 ára. Kærandi telur að kærðu
hafi brotið gegn 2. gr. og 6. gr. siðareglna og mögulega 4. gr.

Í andmælum kærðu er tekið fram að fréttin hafi verið birt vegna þess að efni hennar ætti erindi við
almenning en engin ástæða hefði verið til að rifja upp eldri mál ef ekki vildi svo til að kærandi hefði
verið að reyna að komast inn í viðkvæman hóp fólks á Facebook. Þá er frá því greint að blaðamaður
hefði leitað andstæðra sjónarmiða við vinnslu fréttarinnar, engum staðreyndum hafi verið hagrætt og
engar órökstuddar ásakanir hafi verið settar fram.

Umfjöllun:
Siðanefnd getur fallist á með kærðu að umfjöllunin gæti átt erindi til almennings. Þegar jafnframt eru
virtar þær málsástæður sem kærandi færir fram fyrir kvörtun sinni fær Siðanefnd ekki séð að kærðu
hafi brotið gegn 2. gr. eða 6. gr. siðareglna. Blaðamaður leitaði eftir sjónarmiðum kæranda áður en
umfjöllunin birtist og virti blaðamaður þau fyrirmæli kæranda að ekki mætti hafa nokkuð eftir honum.
Þá hafði blaðamaður yndir höndum Facebook samskipti kærða og umsjónarmanns Facebook-síðunnar
og verður ekki séð að blaðamaður hafi hallað réttu máli í umfjöllun sinni. Þá fellst Siðanefnd ekki á að
blaðamaður hafi brotið gegn 6. grein siðareglna. Siðanefnd telur kærðu því ekki hafa brotið gegn
siðareglum.

Úrskurður:
Kærðu hafa ekki gerst brotlegir við siðareglur.

Reykjavík, 24. ágúst 2026,

Pálmi Jónasson
Ásgeir Þór Árnason
Emma Björg Eyjólfsdóttir
Oddur Ástráðsson
Valgerður Anna Jóhannsdóttir