- Félagið & fagið
- BÍ
- Faglegt
- Verðlaun & viðurkenningar
- Atvinnutorg
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Kæruefni:
Kærð er umfjöllun Frosta Logasonar og myndbirting á vefmiðlinum Nútíminn. Ekki er tilgreint hvaða frétt er kærð. Í kærunni segir að í fréttinni felist meiðyrði, ærumeiðingar, mannorðsbrot og ólögleg myndbirting. Ekki eru tilgreindar efnisgreinar siðareglna sem Frosti á að hafa brotið gegn.
Málsmeðferð:
Kæran barst skrifstofu BÍ 20.03.2025. Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands fékk málið sent samdægurs. Þar sem augljóst þótti að kæran uppfyllti ekki málsmeðferðarreglur Siðanefndar var kæranda gefinn kostur á að lagfæra kæruna. Ekki var brugðist við því boði. Siðanefnd afgreiddi því málið á fundi 08.04.2025.
Málavextir:
Kærandi telur að í fréttinni felist meiðyrði, ærumeiðingar, mannorðsbrot og ólögleg myndbirting. Umfjöllun nefndarinnar: Í málsmeðferðarreglum siðanefndar og sérstöku kærublaði sem kærendur fylla út kemur skýrt fram hvað þurfi að liggja fyrir svo kæra geti verið tekin til umfjöllunar. Kæruefni skal vera afmarkað með augljósum hætti. Kærandi þarf að hafa leitað leiðréttingar hjá viðkomandi miðli. Hann þarf að vera aðili máls eða hafa ríkra hagsmuna að gæta. Kæran þarf að berast innan tveggja mánaða frá birtingu efnisins. Og kærandi þarf að láta hina kærðu umfjöllun fylgja með kærunni. Þar sem augljóst þótti að kæran uppfyllti ekki málsmeðferðarreglur Siðanefndar var kæranda gefinn kostur á að lagfæra kæruna. Ekki var brugðist við því boði. Siðanefnd telur kæranda ekki fullnægja 2 málsmeðferðarreglur við meðferð kæra vegna meintra brota á Siðareglum Blaðamannafélags Íslands og því beri að vísa málinu frá.
Úrskurðarorð:
Málinu er vísað frá Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands.
Undirritað í Reykjavík 08.04.2025
Pálmi Jónasson, formaður
Emma Björg Eyjólfsdóttir
Ásgeir Þór Árnason
Valgerður Anna Jóhannsdóttir
Jóhann Óli Eiðsson