- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Blaðamannafélag Íslands stendur fyrir tveggja daga námskeiði í gagnadrifinni frásögn (e. data storytelling) dagana 29. og 30. október 2026 í húsakynnum félagsins í Síðumúla. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á hvernig vinna má fréttir úr flóknum og oft þurrum gögnum, setja þau í samhengi og umbreyta þeim í aðgengilegar fréttir og sögur sem ná til fólk.
Kennarinn er Anna Feigenbaum, höfundur bókarinnar The Data Storytelling Workbook og prófessor í fjölmiðlum við Háskólann í Glasgow.
Á námskeiðinu færðu að kynnast
Námskeiðið er ætlað blaðamönnum og öðrum þeim sem vinna við miðlun upplýsinga og gagna, og eru félagar í BÍ
Skráningarfrestur er til og með 20. október. Pláss á námskeiðið eru takmörkuð.
Verð: 24.900kr.
Kennitala: 690372-0109
Reikningsnúmer: 0130-26-108446
Um kennarann:
Anna Feigenbaum er einn helsti sérfræðingur heims í gagnadrifinni sagnalist, með sérstaka áherslu á miðlun vísindaefnis. Hún er höfundur bókarinnar The Data Storytelling Workbook, þar sem hún setur fram hagnýtar aðferðir til að vinna áhrifaríkar sögur úr flóknum gagnasöfnum.
Anna hefur unnið sem ráðgjafi og leiðbeinandi fyrir stofnanir á borð við NHS, fjölmiðla og háskóla um allan heim og hafa rannsóknir hennar m.a. hlotið styrki frá Sameinuðu þjóðunum. Verk hennar hafa m.a. skilað sér í Webby-verðlaunuðum gagnaverkefnum, myndasögum og safnasýningum, auk fjölda ritrýndra greina og bóka.
Ath. sjóðfélagar Endurmenntunarsjóðs BÍ geta sótt um endurgreiðslu á 75% af námskeiðsgjaldi og lausamenn styrk fyrir helmingi námskeiðsgjalds.