Netnámskeið í gervigreindarkerfum fyrir blaðamennsku

Mynd/iStock
Mynd/iStock

Blaðamönnum og stjórnendum fjölmiðla býðst að skrá sig á fimm vikna netnámskeiðið Understanding and Building AI Systems for Journalism, sem hefst mánudaginn 5. október og stendur til 8. nóvember, en hægt er að nálgast fyrirlestrana hvenær sem þátttakendum hentar. Námskeiðið kostar 99 dollara og er hægt að sækja um endurgreiðslu á 75% þess gjalds í gegnum endurmenntunarsjóð BÍ. 

Námskeiðið er á vegum Knight Center for Journalism in the Americas við Texas-háskóla í Austin. Kennari er Aimee Rinehart, stofnandi Frontier Collective og fyrrverandi yfirvörustjóri gervigreindarstefnu hjá Associated Press. Hún mun leiðbeina blaðamönnum og stjórnendum um hvernig innleiða megi gervigreind á ritstjórnir á hagnýtan hátt, meðal annars með því að greina upplýsingaskipulag eigin ritstjórnar og traust gagna. Þá fá þátttakendur kennslu í því að smíða sinn eigin þekkingarbanka í Obsidian og tengja gervigreindaraðstoðarmann við hann með svokölluðum MCP-þjóni og skoða hvernig sama uppbygging gæti nýst á ritstjórn. 

Nánari upplýsingar er að finna hér.