Samningaráð að meta stöðuna

Samningaráð BÍ kom saman á þriðjudag til að meta stöðu kjarasamnings BÍ og SA í ljósi þess að stór stéttarfélög hafa lýst því yfir að þau séu að íhuga að segja upp kjarasamningum á grundvelli þess að forsendur væru brostnar. Kjarasamningur BÍ og SA, sem aðrir kjarasamningar BÍ byggja á inniheldur sama forsenduákvæði og aðrir samningar á opinberum markaði og er hann því uppsegjanlegur frá sama tíma. Ákvað samningaráð BÍ að fylgst yrði vel með stöðunni á vinnumarkaði og ákvörðun tekin um hvort segja eigi upp samningum BÍ og SA. Til þess hefur BÍ fimm daga og mun halda fundi með félagsmönnum á vinnustöðum til að ræða stöðuna, komi til þess að önnur félög ákveði að segja upp sínum samningum.