- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Stjórnarráðið hefur ákveðið að beina auglýsingakaupum sínum til fjölmiðla fremur en erlendra samfélagsmiðla og leitarvéla. Markmiðið er að styrkja rekstrarumhverfi íslenskra fjölmiðla og draga úr því að opinbert auglýsingafé renni úr landi.
Ákvörðunin er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla. Ráðuneyti og stofnanir eru jafnframt hvött til að kaupa áskriftir að fjölmiðlum, bæði til að auka aðgang starfsfólks að fréttum og samfélagsumræðu og til að styðja við sjálfbæran rekstur fjölmiðla.
Sambærileg tillaga var lögð fram á Lausnamóti Blaðamannafélags Íslands og kynnt menningar, nýsköpunar og háskólaráðuneytinu. Þar var lagt til að hið opinbera markaði sér skýra stefnu um kaup á auglýsingum og áskriftum.
Í tillögunni var bent á að stór hluti opinbers auglýsingafjár rynni til erlendra samfélagsmiðla og lagt til að ráðuneyti og opinberar stofnanir beindu auglýsingakaupum sínum í auknum mæli til fréttamiðla. Jafnframt var lagt til að hið opinbera keypti áskriftir að íslenskum fjölmiðlum fyrir starfsfólk sitt.