- Félagið & fagið
- BÍ
- Faglegt
- Verðlaun & viðurkenningar
- Atvinnutorg
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna hefur tilkynnt um þau sem sköruðu fram úr í faginu á síðasta ári og hljóta tilnefningu til verðlauna fyrir vinnu sína. Veitt eru verðlaun í fjórum flokkum og er þrennt tilnefnt í hverjum flokki. Verðlaunaafhending fer fram í Hafnarhúsi við Tryggvagötu í Reykjavík, föstudaginn 13. mars 2026, klukkan 18:00.
Rökstuðning dómnefndar og þau sem tilnefnd eru má finna hér að neðan

Fyrir viðtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Ingibjörg Dögg fylgir Höllu í lífi og starfi um nokkurra daga skeið og gefur það lesandanum nýja og áhugaverða sýn á forsetann Höllu og konuna á bak við embættið. Halla greinir frá sársaukafullri reynslu í barnæsku og kynferðisofbeldi sem hefur markað líf hennar. Í viðtalinu felast mikilvæg skilaboð frá Höllu til þolenda um að kynferðisofbeldi þurfi ekki að skilgreina þá um ókomna tíð.
Fyrir viðtal á Vísir.is við Friðrik Ólafsson, stórmeistara í skák, í tilefni 90 ára afmælis hans. Jakob ávinnur sér traust þessa hlédræga og hógværa manns og úr verður skemmtilegt og fróðlegt viðtal þar sem Friðrik rekur lífshlaup sitt, viðurkennir að hafa verið undrabarn í skák, segir frá sambandi sínu við Bobby Fischer og ræðir breytingar sem hafa orðið á skákíþróttinni. Viðtalið er fallegur og fróðlegur minnisvarði um glæstan feril þessa merka skákmanns.
Fyrir viðtal í Kompás við Birgi Karl Óskarsson og Iðunni Eiríksdóttur, foreldra Bryndísar Klöru sem lést eftir stunguárás á menningarnótt 2024. Birgir og Iðunn deila sögu sinni og harmi á erfiðustu stundu lífs síns. Þau draga ekkert undan í frásögn af atburðum hinnar örlagaríku nætur en á sama tíma veita þau þjóðinni innsýn í fallegt lífshlaup Bryndísar Klöru. Viðtalið er áhrifamikið og stuðlaði að umræðum og aðgerðum sem beinast að því að vinna að öryggi og velferð ungmenna.
Hlekkur á viðtal Sunnu við foreldra Bryndísar Klöru
Umfjöllun ársins 2025

Fyrir lifandi og afar fræðandi umfjöllun um ferð hennar með hópi vísindamanna á einn afskekktasta stað landsins, Esjufjöll í Vatnajökli. Esther tekst einstaklega vel að hrífa lesendur með sér, veita innsýn og vekja áhuga á vísindalegum uppgötvunum og sérhæfðum smáatriðum um gróðurfar og áhrif loftslagsbreytinga á samspil jökla og náttúru.
Fyrir vandaða og yfirgripsmikla umfjöllun í Kveik um afleiðingar alvarlegrar e.coli matarsýkingar sem upp kom í leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Kristín fylgir málinu eftir af festu, varpar nýju ljósi á bæði ástæður og afleiðingar smitsins, talar við fjölda fólks, spyr óvæginna spurninga og sýnir áður óbirt myndbönd og ljósmyndir. Umfjöllunin er skýr, vel fram sett og nýtir kosti myndmiðilsins vel.
Fyrir hlaðvarpsþáttaröðina Konungssinnar í Kísildal sem fjallar um uppruna þeirra hugmyndafræðilegu sviptinga sem nú eiga sér stað í Bandaríkjunum. Þættirnir eru fræðandi og afhjúpandi og ljóst að þáttastjórnendur hafa lagt í mikla heimildavinnu. Þetta margslungna og flókna umfjöllunarefni er sett fram í lifandi samtalsformi sem gerir efnið aðgengilegt og spennandi.

Fyrir umfjöllun í Speglinum um umfangsmikil viðskipti embættis ríkislögreglustjóra við ráðgjafafyrirtæki sem vann afar fjölbreytileg verkefni fyrir embættið og fékk háar upphæðir greiddar. Með mikilli upplýsingaöflun var dregin upp skýr mynd af málinu. Umfjöllunin varpaði ljósi á meðferð á opinberu fé hjá stórri ríkisstofnun og leiddi til atburðarásar sem endaði með því að ríkislögreglustjóri hætti störfum.
Fyrir umfjöllun um stöðu geðheilbrigðismála sem unnin var í samstarfi Morgunblaðsins og Austurgluggans og birtist á báðum. Upplýst var að maður sem banaði hjónum í Neskaupstað árið 2024 átti að vera í gæslu. Umfjöllunin beindi kastljósinu að stöðu geðheilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og leiddi til þess að yfirvöld ákváðu að fjölga úrræðum fyrir einstaklinga sem hvorki áttu heima í fangelsi né á hefðbundinni geðmeðferðarstofnun.
Fyrir umfjöllun í Kveik um umfangsmiklar njósnaaðgerðir sem stóðu yfir vikum saman haustið 2012 að undirlagi Björgólfs Thors Björgólfssonar. Afhjúpað var hvernig fylgst var með fólki sem hugðist leita réttar síns gagnvart Björgólfi, það hlerað og elt af fyrrverandi og þáverandi lögreglumönnum. Umfjöllunin leiddi til athugunar eftirlitsnefndar um störf lögreglu, persónuverndar, dómsmálaráðherra og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á verklagi lögreglu.
Blaðamannaverðlaun ársins 2025

Fyrir fréttaskýringar um loftslagsmál á Vísir.is. Flókin umfjöllunarefni skýrð á mannamáli án þess að afsláttur sé gefinn af fagmennsku. Kjartan hefur sýnt elju við öflun gagna og fylgt málum vel eftir. Hann afhjúpaði misskilning stjórnvalda á losunarmarkmiði Íslands í samstarfi við Evrópusambandið sem varð til þess að íslensk stjórnvöld þurftu að endurskoða markmið sín vegna Parísarsamningsins.
Fyrir ítarlega umfjöllun á mbl.is um neyðarástand í málefnum barna í viðkvæmri stöðu. Sólrún Lilja hefur sýnt einstaka þrautseigju við að vekja athygli á þessum vanda með ítrekuðum afhjúpunum, viðamikilli umfjöllun og eftirfylgni með málum. Hún hefur krafið stjórnvöld svara og þannig stuðlað að löngu tímabærum breytingum í þessum viðkvæma málaflokki. Nokkrar greinar úr umfjöllun Sólrúnar Lilju: Börnin sem kerfið brást - Svona smygla börnin inn fíkniefnum - Það er galið að barnið mitt sé dáið
Fyrir fréttaskýringar í þættinum Þetta helst. Þóra er næm á fréttaefni sem öðrum sést yfir og beitir ríkulegri frásagnargáfu við framsetningu þess. Dæmi um þetta er saga írska fiðluleikarans Sean Bradley sem hvarf sporlaust frá Íslandi, hálfíslensku dragdrottningarinnar Heklínu sem fannst látin við dularfullar aðstæður í Lundúnum, Sofiu Kolesnikovu sem fannst látin á Selfossi og unglingsstúlku sem varð fyrir barðinu á ofbeldishópnum 764.
Dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna 2025 skipa Pálmi Jónasson (formaður), Arndís Þorgeirsdóttir, Brynhildur Ólafsdóttir og Steinunn Stefánsdóttir.
Verðlaunaafhending fer fram í Hafnarhúsi við Tryggvagötu í Reykjavík, föstudaginn 13. mars 2026, klukkan 18:00.