Tillaga um tvær stjórnir (MEN/ORL/END) í stað einnar

Stjórn félagsins á aðalfundi Blaðamannafélags Íslands 21. apríl 2026 leggja til eftirgreindar tillögur að breytingum á lögum félagsins:

1.Stjórnir sjóða

Stjórn leggur til eftirgreindar breytingar sem varða stjórnir sjóða félagsins. Breytingarnar lúta að því að sérstök stjórn verði kjörin yfir annars vegar Menningarsjóð og Endurmenntunarsjóð og hins vegar Orlofsheimilasjóð, en hingað til hefur sama stjórnin verið yfir öllum sjóðum. Um leið er lagt til að í báðum stjórnum verði kjörnir stjórnarmenn sem sitja í tvö ár frá kjöri, þannig að tveir aðalmenn séu kjörnir annað árið en einn aðalmaður hitt árið og einn varamaður af tveimur á hverjum aðalfundi. Þá er einnig lagt til að sami háttur verði hafður á kjöri stjórnar Styrktarsjóðs og að fjallað verði með réttum hætti um það í ákvæðum um dagskrá aðalfundar.

Breytingarnar sem stjórn leggur til eru annars vegar á gr. 4.3, þar sem fjallað er um dagskrá aðalfundar, og hins vegar á gr. 4.7 og með tillögu um nýja gr. 4.8.

Grein 4.3. breytist á eftirgreindan hátt:

Á eftir dagskrárlið um kjör siðanefndar komi eftirtaldir dagskrárliðir í stað þeirra sem nú fjalla um kjör stjórna Menningarsjóðs, Orlofshúsasjóðs og Endurmenntunarsjóðs og Styrktarsjóðs:

Kosning eins/tveggja aðalmanna í stjórn Menningarsjóðs og Endurmenntunarsjóðs og eins varamanns

Kosning eins/tveggja aðalmanna í stjórn Orlofshúsasjóðs og eins varamanns

Kosning eins/tveggja aðalmanna í stjórn Styrktarsjóðs BÍ og eins varamanns

Grein 4.7. verði svohljóðandi:

Aðalfundur kýs þrjá félagsmenn og tvo til vara í sameiginlega stjórn Menningarsjóðs og Endurmenntunarsjóðs BÍ, Kjósa skal tvo aðalmenn og einn varamann annað árið og einn aðalmann og einn varamann hitt árið.

Tekin verði upp ný grein 4.8 í lög félagsins svohljóðandi:

Aðalfundur kýs þrjá félagsmenn í stjórn Orlofsheimilasjóðs BÍ og tvo til vara. Kjósa skal tvo aðalmenn og einn varamann annað árið og einn aðalmann og einn varamann hitt árið.

Greinar sem nú eru með númerin 4.8 - 4.11 verði númer 4.9 - 4.12.

2. Dómnefnd Blaðamannaverðlauna

Í núgildandi lögum er misræmi á milli gr. 4.3. um dagskrá aðalfundar og gr. 4.10 um skipan dómnefndar Blaðamannaverðlauna, þar sem ekki er gert ráð fyrir kjöri tveggja varamanna í dómnefndina, auk þess sem talað er um úthlutunarnefnd í núgildandi gr. 4.10. Stjórn leggur til að þetta verði lagfært.

Grein 4.3. breytist á eftirgreindan hátt:

Dagskrárliður er varðar kjör dómnefndar Blaðamannaverðlauna verði svohljóðandi:

Kosning fimm manna í dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna og tveggja varamanna

Grein 4.10 (sem verður gr. 4.11 ef tillaga 1 er samþykkt) breytist á eftirgreindan hátt:

Í stað orðsins úthlutunarnefnd komi orðið dómnefnd.