- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um tvær nýjar stuðningsleiðir fyrir einkarekna fjölmiðla. Samtals verður 100 milljónum króna varið til þeirra í ár. Báðar eru hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla.
60 milljónir króna renna til viðbótarstuðnings við miðla sem sinna daglegri fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu og uppfylla skilyrði fjölmiðlalaga. Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember.
40 milljónir króna eru til úthlutunar úr nýjum nýsköpunar- og þróunarsjóði fjölmiðla. Hann styrkir stofnun og þróun nýrra fréttamiðla og nýsköpun innan starfandi miðla. Umsóknarfrestur er til 16. nóvember.
Blaðamannafélag Íslands hefur lengi beitt sér fyrir auknum stuðningi við einkarekna fjölmiðla. Stuðningur við nýsköpun var meðal tillagna á Lausnamóti félagsins í mars 2025. Þar bentu þátttakendur á að skortur á tíma og fjármagni héldi aftur að nýsköpun á ritstjórnum.
Nánari upplýsingar um skilyrði og umsóknir: