- Félagið & fagið
- BÍ
- Faglegt
- Verðlaun & viðurkenningar
- Atvinnutorg
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Blaðamannaverðlaunin fyrir árið 2025 verða veitt í kvöld, föstudaginn 13. mars. Athöfnin fer fram í Hafnarhúsi í Listasafni Reykjavíkur og hefst klukkan 18. Verðlaununum er ætlað að heiðra framúrskarandi blaðamennsku á Íslandi og eru þau veitt í fjórum flokkum: Blaðamannaverðlaun ársins, viðtal ársins, umfjöllun ársins og rannsóknarblaðamennska ársins.
Fulltrúar dómnefndar Blaðamannaverðlaunanna tilkynna verðlaunahafa ársins 2025 og að því verður boðið upp á léttar veitingar undir ljúfum tónum DJ Dóru Júlíu.
Blaðamannaverðlaunin eru veitt árlega af Blaðamannafélagi Íslands til viðurkenningar fyrir framúrskarandi frammistöðu og gott fordæmi í íslenskri blaðamennsku. Með verðlaununum er vakin athygli á vönduðum og metnaðarfullum störfum blaðamanna og mikilvægi frjálsra og faglegra fjölmiðla í lýðræðissamfélagi.
Veitt eru heiðursskjöl í hverjum flokki, verðlaunagripur og peningaverðlaun. Viðurkenningar eru veittar í öllum flokkum svo fremi dómnefnd telji að tilnefningar uppfylli þau faglegu viðmið sem gerð eru.
> Nánari upplýsingar um Blaðamannaverðlaunin 2025 og þau sem hlutu tilnefningar
> Yfirlit yfir verðlaunahafa Blaðamannaverðauna fyrri ára
Hér má fylgjast með beinu streymi af athöfninni