- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Erla Hlynsdóttir skrifar
Ísland er meðal stofnríkja Media Freedom Coalition (MFC), alþjóðlegs samstarfs ríkja sem vinnur að því að verja fjölmiðlafrelsi og öryggi blaðamanna á heimsvísu. Þátttaka Íslands hefur falist í formlegri aðild og undirritun sameiginlegra yfirlýsinga.
Ísland er meðal þeirra ríkja sem undirrituðu yfirlýsingu MFC frá júlí 2023 þar sem árásin á rússneska blaðamanninn Elenu Milashina í Tsjetsjeníu var fordæmd. Þá skrifaði Ísland einnig undir yfirlýsingu frá 3. nóvember 2025 í tilefni alþjóðlegs dags gegn refsileysi fyrir glæpi gegn blaðamönnum, þar sem sérstaklega var fjallað um vaxandi ógnir sem blaðamenn standa frammi fyrir, meðal annars vegna gervigreindar og stafræns kynbundins ofbeldis gegn kvenkyns blaðamönnum.
MFC var stofnað árið 2019 á Global Conference for Media Freedom og telur í dag yfir 50 aðildarríki frá sex heimsálfum. Markmið bandalagsins er að bæta skilyrði fyrir frjálsa og sjálfstæða fjölmiðlun og auka öryggi blaðamanna, bæði innan aðildarríkja og á alþjóðavettvangi.
Aðild að MFC byggist á pólitískri skuldbindingu til að styðja fjölmiðlafrelsi og öryggi blaðamanna. Aðild krefst formlegrar umsóknar og mats á því hvort ríki uppfylli grundvallarviðmið um tjáningarfrelsi og réttarríki. Engar reglur kveða á um lágmarksfjárframlög, forystuhlutverk eða tilteknar árlegar aðgerðir til að halda aðild.
Starf Media Freedom Coalition felst meðal annars í útgáfu sameiginlegra yfirlýsinga og diplómatískum aðgerðum þar sem stjórnvöld eru hvött til að virða fjölmiðlafrelsi, stuðningi við lagabreytingar sem bæta stöðu blaðamanna og samstarfi við frjáls félagasamtök og réttindasamtök, lögfræðinga og alþjóðastofnanir á borð við UNESCO. Eitt helsta tæki MFC til að hrinda markmiðum sínum í framkvæmd er Global Media Defence Fund, sjálfstæður sjóður sem var settur á laggirnar með stuðningi aðildarríkja bandalagsins og er rekinn af UNESCO.
Ísland er ekki á lista þeirra ríkja sem hafa lagt fjármuni í Global Media Defence Fund. Þá liggja engin dæmi fyrir um að Ísland hafi leitt sérstök verkefni eða haft samhæfingar- eða forystuhlutverk innan MFC.
Send var fyrirspurn á utanríkisráðuneytið í því skyni að fá upplýsingar um hvert framlag Íslendinga sé til þess að bæta skilyrði fyrir frjálsa og sjálfstæða fjölmiðlun og auka öryggi blaðamanna á alþjóðavettvangi. Eftirfarandi svar barst frá ráðuneytinu:
„Ísland er eitt stofnríkja bandalags um fjölmiðlafrelsi – Media Freedom Coalition. Markmið bandalagsins er að beita sér fyrir öryggi fjölmiðlafólks og auknu fjölmiðlafrelsi. Ísland tekur reglulega undir yfirlýsingar bandalagsins, t.d. um handtökur fjölmiðlafólks. Slíkar sameiginlegar yfirlýsingar þjóna þeim tilgangi að vekja athygli á málum einstaklinga eða þrýsta á um umbætur hvað varðar fjölmiðlafrelsi. Ísland sækir reglulega samráðsfundi á vettvangi bandalagsins.
Í tengslum við stofnun Media Freedom Coalition var stofnaður sérstakur sjóður um stuðning við fjölmiðlafólk, Global Media Defence Fund, sem er hýstur hjá UNESCO. Ísland hefur um árabil veitt fjárframlög til sjóðs UNESCO um tjáningarfrelsi og öryggi fjölmiðlafólks (MDP). Meðal verkefna sjóðsins er ráðgjöf til ríkja varðandi lagasetningu um fjölmiðla, átaksverkefni um fjölmiðlalæsi og stuðningur við fjölmiðlafólk á hættutímum. Ísland veitir einnig fjárframlög til alþjóðlegu áætlunarinnar um þróun fjölmiðlunar (IPDC) á vegum UNESCO sem miðar að því að efla fjölmiðlaumhverfi og styrkja sjálfstæða fjölmiðlun í þróunarríkjum, ríkjum í umskiptum og á átakasvæðum. Þá er lögð áhersla á viðbrögð við vaxandi upplýsingaóreiðu til að koma í veg fyrir að hún grafi undan lýðræði og mannréttindum.
Lögð er áhersla á vernd lýðræðis, tjáningar- og fjölmiðlafrelsis í öllu mannréttindastarfi Íslands. Unnið er að framgangi tjáningar- og fjölmiðlafrelsis í setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna og innan Evrópuráðsins, UNESCO og Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Í nýlegri samantekt ráðuneytisins um áherslur Íslands í mannréttindamálum er kafli um lýðræði, tjáningar- og fjölmiðlafrelsi.“