Áhrifavaldar sem dreifileið

Aðalsteinn Kjartansson.
Aðalsteinn Kjartansson.

Aðalsteinn Kjartansson, aðstoðarritstjóri Heimildarinnar, skrifar

Ein af stærstu áskorunum hefðbundinnar fréttamiðlunar er að athyglin keppir við efni sem líkir eftir blaðamennsku án þess að lúta sömu faglegu kröfum. Ritstýrðir miðlar eiga ekki aðeins í samkeppni sín á milli heldur einnig við áhrifavalda og þá sem miðla skoðunum sínum í gegnum samfélagsmiðla.

Spurningin er: Hvernig á að koma flóknum og mikilvægum upplýsingum til skila í gegnum stöðugt streymi upplýsinga? Rannsóknarmiðillinn Probe á Filippseyjum svaraði þessari áskorun með nýstárlegri nálgun sem fólst í því að nýta áhrifavalda (e. influencers) sem beinan farveg fyrir umfjallanir sínar.

Í stað þess að treysta eingöngu á eigin dreifileiðir, sem oft ná ekki til yngri kynslóða, tóku stjórnendur Probe ákvörðun um að nýta áhrifavalda sem dreifileið. Með því að eiga í samstarfi við áhrifavalda sem hafa stóran fylgjendahóp á miðlum eins og TikTok og YouTube, tókst Probe að nýta sitt víðfeðma safn af sögulegu efni og samhengi til að gera fréttaefni aðgengilegt.

Áhrifavaldar unnu með blaðamönnum að því að miðla efni til sinna fylgjenda og settu þær í samhengi sem átti við hverju sinni og notendur gátu tengt við. Þessi stefna gerði Probe kleift að nýta reiknirit samfélagsmiðla sér í hag og koma mikilvægum fréttum á framfæri í daglegri neyslu fólks sem annars hefði aldrei horft á hefðbundinn fréttaþátt.

Tilraun Probe sýnir að ritstjórnir geta verið skapandi í dreifingu án þess að gefa eftir í faglegum vinnubrögðum. Slíkar leiðir geta styrkt blaðamennsku í brotakenndu miðlaumhverfi, að því gefnu að ritstjórnarleg ábyrgð og gæði upplýsinga sé tryggt í samræmi við vinnubrögð blaðamennskunnar.