- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
5. febrúar
Who Makes the News? Nordic summit for gender equality in the news
Kaupmannahöfn, Danmörku
Við hverja er talað í fréttum? er viðfangsefni norrænnar ráðstefnu sem haldin verður í Kaupmannahöfn 5. febrúar næstkomandi. Þar verða kynntar alþjóðlegar og norrænar niðurstöður um jafnrétti kynjanna í fréttamiðlum. Þar kemur saman fólk úr fjölmiðlum, háskólum, stjórnmálum og frá ýmsum félagasamtökum og ræðir stöðuna, leiðir til að efla samstarf og deilir góðum starfsháttum. Ráðstefnan markar 30 ára afmæli Pekingáætlunarinnar og miðar að því að hvetja fjölmiðlageirann til að taka meiri ábyrgð á jafnri og fjölbreyttri framsetningu og stuðla þannig að lýðræðislegra fjölmiðlaumhverfi og auknu tjáningarfrelsi. Háskóli Íslands ásamt háskólum í Finnlandi, Grænlandi, Noregi og Danmörku standa fyrir ráðstefnunni með stuðningi frá BÍ. Valgerður Jóhannsdóttir, dósent og umsjónarmaður náms í blaðamennsku við HÍ, er ein af skipuleggjendum ráðstefnunnar. Erla Björg Gunnarsdóttir, fyrrverandi ritstjóri fréttastofu Sýnar, tekur þátt í pallborði. Sjá nánar: english.hi.is/conference/who-makes-news
15. - 18. apríl
International Journalism Festival
Perugia, Ítalíu
Stærsta opna blaðamennskuhátíð Evrópu þar sem blaðamenn, ritstjórar og fræðimenn ræða framtíð blaðamennsku, fréttamiðlunar, rannsóknarblaðamennsku, stafræna þróun og hlutverk fjölmiðla í lýðræðisumræðu.
2. - 8. maí
World Congress of News Media
Berlín, Þýskalandi
Aðalráðstefna útgefenda og stjórnenda fjölmiðla um heim allan, þar sem fjallað er um rekstrarumhverfi fjölmiðla, tekjumódel, stefnu og stafræna umbreytingu í fréttamiðlum.
6. - 8. maí
IPI Media Innovation Festival
Vín, Austurríki
Nýsköpunarráðstefna Alþjóðlegu blaðamannastofnunarinnar (IPI) þar sem frumkvöðlar, fjölmiðlafólk og þróunarteymi vinna að nýjum lausnum, tekjumódelum og stafrænum aðferðum til að styrkja frjálsa, sjálfbæra blaðamennsku.
28. - 31. maí
Dataharvest
Machelen, Belgíu
Evrópska rannsóknarblaðamennskuráðstefnan þar sem hundruð blaðamanna hittast til að deila aðferðum í gagnadrifinni blaðamennsku og rannsóknum þvert á landamæri, byggja upp tengslanet og þróa sameiginleg verkefni.
1. - 3. júní
77th World News Media Congress
Marseille, Frakklandi
Heimsþing fyrir ritstjóra, útgefendur og eigendur fjölmiðla þar sem rætt er um stefnur, tækni - þar með talda gervigreind, viðskiptamódel, sem og helstu tækifæri og áhættur í alþjóðlegri fréttamiðlun.
23. - 24. júní
DW Global Media Forum
Bonn, Þýskalandi
Alþjóðleg ráðstefna þar sem fjölmiðlafólk, fræðimenn og stefnumótendur ræða fjölmiðlafrelsi, gervigreind og siðferði í fréttaflutningi, lýðræði og áskoranir stafræns upplýsingalandslags.
24. - 27. september
Breakwater Festival
Gdansk, Póllandi
Ný evrópsk blaðamennskuhátíð sem sameinar blaðamenn frá Póllandi, Norðurlöndum og Mið- og Austur-Evrópu með áherslu á rannsóknarblaðamennsku, samstöðu, samvinnu þvert á landamæri og frelsi fjölmiðla.
16. - 17. nóvember
International Conference on Journalism and Mass Communication
Reykjavík, Íslandi
Alþjóðleg, akademísk ráðstefna þar sem fræðafólk og nemar í fjölmiðla- og samskiptafræðum kynna rannsóknir á blaðamennsku og fjölmiðlum og ræða nýjustu þróun í fræðunum.
Endurmenntunarsjóður Blaðamannafélags Íslands veitir sjóðfélögum styrki til að sækja námskeið og ráðstefnur. Greitt er allt að 75% námskeiðs- eða þátttökugjalds, að hámarki kr. 200.000. Til viðbótar eru greiddir styrkir vegna ferðakostnaðar þar sem greitt er allt að 75% af fargjaldi og gistikostnaði í tengslum við þátttöku í námskeiði eða ráðstefnu, að hámarki kr. 100.000 á 24 mánaða tímabili. Nánar á press.is/is/styrkir-og-sjodir/thetta-er-styrkt.