Aukum traustið saman – öllum til hagsbóta

Aðalbjörn Sigurðsson, formaður Tengslanetsins, deildar miðlunar og samskipta innan BÍ, segir mikilvæ…
Aðalbjörn Sigurðsson, formaður Tengslanetsins, deildar miðlunar og samskipta innan BÍ, segir mikilvægt að stofna faglegan vettvang fyrir almannatengla og að bæta þurfi samstarf almannatengla og blaðamanna. Ljósmynd: Marinó Flóvent

Aðalbjörn Sigurðsson, formaður Tengslanetsins, skrifar

Þrátt fyrir að almannatenglum hafi fjölgað talsvert síðustu árin hefur fram að þessu ekki verið til faglegur vettvangur fyrir þá sem starfa við fagið. Fjölmargir almannatenglar hafa reyndar verið um árabil félagar innan Blaðamannafélags Íslands (BÍ) og notið góðs af þeirri þjónustu sem félagið veitir. En hún er skiljanlega að mestu miðuð að starfandi blaðamönnum.

Eins og við blasir fara hagsmunir blaðamanna og fjölmiðlafólks og almannatengla ekki alltaf saman. Sú hugmynd hefur því lengi flögrað um innan félagsins að búa til sérstaka deild, sem heldur betur utan um hagsmuni almannatengla innan BÍ. Þar væri hægt að vinna sérstaklega að hagsmunum almannatengla. Með því að búa til umgjörð utan um þá vinnu innan ákveðinnar deildar væri byggður eldveggur milli hagsmunagæslu almannatengla og hagsmunagæslu fyrir blaðamenn.

Á aðalfundi BÍ fyrir þremur árum var samþykkt að stofna slíka deild. Það varð að veruleika þann 14. maí 2025 þegar haldinn var formlegur stofnfundur deildar almannatengla sem hlotið hefur nafnið Tengslanetið.

Faglegur vettvangur

Áður en lengra er haldið vil ég taka fram að þó að ég noti hugtakið „almannatenglar“ hér þá geri ég mér grein fyrir að starfsheiti þeirra sem falla undir Tengslanetið eru fjölmörg. Deildin á samkvæmt samþykktum að vera faglegur vettvangur allra þeirra sem starfa við hvers kyns miðlun, upplýsingagjöf og samskipti. Það að nota orðið „almannatengill“ er aðeins til einföldunar. Ég vona að mér verði það fyrirgefið.

En allavega. Tengslanetið hefur nú verið stofnað og er leitt af sérlega öflugum hópi. Þau sem eiga sæti í stjórn deildarinnar eru auk mín þau Ari Brynjólfsson, Guðrún Óla Jónsdóttir, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, Karen Kjartansdóttir og Lára Ómarsdóttir. Það er ekki sjálfgefið að fólk gefi sig í amstri hversdagsins fram í félagsstörf og það er ómetanlegt að fá svo reynslumikinn hóp að starfinu.

Öllum opið

Hlutverk stjórnar er viðamikið en hún mótar meðal annars starf nýrrar deildar frá grunni. Það er hvorki einfalt né auðvelt því augljóslega er hægt að fara ótal leiðir. Til dæmis þurfti strax í upphafi að ákveða fyrir hverja deildin ætti að starfa og var niðurstaðan sú að allir sem starfa við almannatengsl eru velkomnir. Þannig var fyrsti formlegi viðburður deildarinnar, þar sem fjallað var um siðferði í almannatengslum, öllum opinn. Sá fundur var haldinn 29. október á þungskýjuðu fimmtudagseftirmiðdegi, í kjölfarið á einni mestu snjókomu í manna minnum í Reykjavík. Þrátt fyrir að illfært væri um borgina var mæting með ágætum á áhugaverðan fund sem fram fór á skrifstofu BÍ í Síðumúla.

Á fundinum héldu reynsluboltar í almannatengslum og fréttamennsku erindi þar sem umræðuefnið var siðferði og traust. Eðlileg spurning, þar sem margir – fyrir misskilning – velta fyrir sér hvaða siðferðilegu vísa almannatenglar notast við? Treysta fréttamenn almannatenglum sem þurfa að huga að hagsmunum viðskiptavina eða vinnuveitenda sinna? Geta þessar stéttir unnið betur saman með það að markmiði að bæta upplýsingagjöf til almennings? Sem er jú sameiginlegt markmið beggja stétta. Líflegar umræður sköpuðust um þessi mál á fundinum og sýndist skiljanlega sitt hverjum. Fundurinn sýndi glögglega fram á mikilvægi þessa samtals sem ég geri ráð fyrir að haldið verði áfram á vettvangi deildarinnar á komandi misserum.

Siðareglur í smíðum

Verkefnin eru miklu fleiri. Þannig var strax á fyrsta fundi stjórnar félagsins samþykkt að hefja vinnu við að setja saman siðareglur fyrir almannatengla. Slíkar reglur eru víða til erlendis en þó að vitað sé að margir í stéttinni hafi sjálfir sett sér siðareglur, og að einstök fyrirtæki sem sérhæfa sig í almannatengslum hér á landi starfi eftir eigin reglum, eru engar almennar reglur til. Stjórn er enn að vinna að fyrstu drögum að nýjum siðareglum fyrir deildina. Vonir standa til að niðurstaðan úr þessari vinnu verði kynnt á næstu vikum eða mánuðum.

Siðareglur skipta máli enda er hlutverk almannatengla mikilvægt þar sem bein og milliliðalaus upplýsingagjöf verður stöðugt umfangsmeiri. En upplýsingagjöf getur aldrei bara verið á forsendum fyrirtækja og stofnana. Það skiptir því ekki síður máli að blaða- og fréttamenn hafi greiðan aðgang að upplýsingum frá almannatenglum í störfum sínum. Í því samhengi hef ég bent á að það er ekki sjálfsagt að fyrirtæki og stofnanir ráði til starfa sérfræðinga í upplýsingagjöf sem í raun tryggir almenningi ekki síður en blaðamönnum og fjölmiðlum aðgang að upplýsingum. Eða allavega að starfsmanni sem hefur það skilgreinda hlutverk að veita upplýsingar. Samstarf stéttanna þarf að vera gott og skilningur á milli þeirra á ólíkum hlutverkum. Þar ætlar Tengslanetið meðal annars að beita sér á komandi misserum, öllum til hagsbóta.