„Barnamálaráðherra átti barn með unglingspilti“

Pálmi Jónasson, formaður Siðanefndar BÍ, kynnir skýrslu Siðanefndar á aðalfundi BÍ 2025.
Pálmi Jónasson, formaður Siðanefndar BÍ, kynnir skýrslu Siðanefndar á aðalfundi BÍ 2025.

Pálmi Jónasson, formaður Siðanefndar BÍ, skrifar

Siðanefnd hefur úrskurðað í 10 kærumálum á árinu sem er að líða. Í sex tilfellum var máli vísað frá og í þremur þeirra var kærandi sá sami. Tvisvar var úrskurðað að umfjöllun væri ekki brot gegn siðareglum en tvívegis að umfjöllun fæli í sér brot á siðareglum. Annars vegar í máli Ásthildar Lóu Þórsdóttur fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra gegn RÚV. Hins vegar vegna fréttar á Nútíminn.is undir fyrirsögninni „Dæmdur íslenskur barnaníðingur sleppur við fangelsi en fær að gangast undir trans ferli“.

Sagði fyrrverandi eiginkonu með Alzheimer

Í máli nr. 6/2024-2025 kærði kona ummæli sem höfð voru eftir fyrrverandi eiginmanni hennar í Heimildinni. Þar fullyrti hann að konan væri með Alzheimer og versnaði stöðugt. Viðtalið var hluti af umfjöllun um íbúa sem bjuggu í hjólhýsum við Sævarhöfða. Taldi konan að brotið hefði verið gegn 1., 2. og 6. grein siðareglna. Konan var ekki nafngreind og blaðamaður ekki ábyrgur fyrir ummælum viðmælenda.

Eftir að athugasemd barst voru ummælin fjarlægð og beðist afsökunar. Niðurstaða Siðanefndar var því að Heimildin hafi ekki brotið gegn siðareglum í málinu.

Dæmdur barnaníðingur og trans ferli

Í máli nr. 2/2023-2024 var kærð umfjöllun Nútímans undir fyrirsögninni „Dæmdur íslenskur barnaníðingur sleppur við fangelsi en fær að gangast undir trans ferli“. Kærandi taldi brotið gegn 2., 3., 6., 7. og 12. grein siðareglna BÍ.

Nýjar siðareglur BÍ voru samþykktar á aðalfundi félagsins í mars 2023. Í eldri reglum var ákvæði um tillitssemi í viðkvæmum málum og því ítrekað úrskurðað að brotið væri gegn siðareglum með heimildarlausum nafn- og myndbirtingum. Sú grein var felld brott í nýjum siðareglum.

Niðurstaða Siðanefndar var að ekki hefði verið um brot að ræða. Hins vegar taldi nefndin að brotið hefði verið gegn 3. grein siðareglna BÍ með því að bregðast ekki við eða svara kröfu um leiðréttingu.

Kærum sömu konunnar vísað frá í þrígang

Í málum 8/2024-2025, 9/2024-2025 og 5/2025-2026 var sama konan kærandi í öllum málunum. Nútíminn, Heimildin og DV.is fjölluðu öll um mál konunnar og ásakanir um að hún væri að hrella marga einstaklinga.

Kærurnar uppfylltu augljóslega ekki málsmeðferðarreglur Siðanefndar og var konunni gefinn kostur á að lagfæra það. Konan brást ekki við því boði. Í öllum tilvikum var því málum hennar vísað frá Siðanefnd BÍ.

Frávísanir af ýmsum orsökum

Málum 1., 2. og 3/2025-2026 var öllum vísað frá.

Fyrsta málið varðaði umfjöllun á RÚV um framferði Ísraelshers á Gasa svæðinu en kærandi var hvorki til umfjöllunar né hafði bein tengsl við umfjöllunarefni.

Í öðru málinu var kvartað yfir synjun á birtingu og ítrekuðum afturköllunum á skoðanagreinum kæranda á visir.is. Siðanefnd taldi kæruna fyrir utan valdsvið sitt og það væri ekki hlutverk nefndarinnar að endurskoða ritstjórnarlegt mat á birtingu aðsendra greina.

Þriðja málið varðaði kæru Jóns Óttars Ólafssonar á umfjöllun Kveiks um persónunjósnir um fjölda fólks árið 2012. Kæran uppfyllti augljóslega ekki málsmeðferðarreglur Siðanefndar og var því vísað frá.

Barnamálaráðherra sagði af sér og kærði umfjöllun RÚV

Í máli nr. 4/2025-2026 kærði Ásthildur Lóa Þórsdóttir fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra umfjöllun sem birtist á vef RÚV undir fyrirsögninni „Barnamálaráðherra átti barn með unglingspilti sem hún leiðbeindi“.

Vegna yfirvofandi umfjöllunar hafði ráðherrann ákveðið að segja af sér og tilkynnti það í viðtali við RÚV skömmu síðar. Í kærunni var blaðamaður sem enga aðkomu hafði að málinu kærður og vísað var til siðareglna lögmanna en ekki blaðamanna en málið engu að síður tekið til efnislegrar umfjöllunar.

Í öllum aðalatriðum taldi Siðanefnd að RÚV hefði ekki gerst brotlegt gegn siðareglum BÍ. Hins vegar hafi RÚV brotið gegn 2. grein siðareglna með fyrirvaralausum tilvísunum til núgildandi ákvæða almennra hegningarlaga en ekki þeirra laga sem þá giltu. Brotið taldist ámælisvert.

Hæfi lögreglustjórans í Vestmannaeyjum

Í máli nr. 6/2025-2026 kærði faðir lögreglustjórans í Vestmannaeyjum þrjár umfjallanir á DV.is um hæfi lögreglustjórans í Vestmannaeyjum til að rannsaka kærumál sem beinist að starfsmönnum bæjarins og þar með talið föður lögreglustjórans.

Faðirinn taldi að miðillinn hefði átt að leita viðbragða hjá honum og var ósáttur með að vera nefndur í umfjölluninni þótt hann hafi ekki verið nafngreindur. Niðurstaða nefndarinnar var að meginviðfangsefni fréttanna hafi verið hæfi lögreglustjórans og ekki hafi verið ástæða til að leita viðbragða kæranda. Ekki var bent á neinar rangfærslur í greinunum og niðurstaðan því að ekki hafi verið brotið gegn siðareglum BÍ.