BÍ ásamt þrettán öðrum Norrænum og baltneskum samtökum krefjast sanngjarnra leikreglna um notkun gervigreindar á efni fjölmiðla

Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín. Oft er það gert án leyfis, án greiðslu og án þess að upplýst sé um notkunina. Samtök blaðamanna og fjölmiðla í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Íslandi, Eistlandi, Lettlandi og Litháen hafa komið sér saman um þrjár tillögur sem fela það í sér að gervigreindarfyrirtæki fái leyfi áður en þau nýta efni fjölmiðla, að þau upplýsi hvernig efnið er notað og að hægt sé að fylgja réttinum eftir.

Tillögurnar þrjár eru kynntar hér að neðan.

Samtökin eru fulltrúar fjölmiðlafyrirtækja, blaðamanna og rétthafa og vinna saman að sanngjarnari markaði fyrir efni fjölmiðla.

„Gervigreindarfyrirtækin nota höfundaréttarvarið efni án leyfis og án þess að greiða fyrir það. Þau selja vöru sem byggist ekki síst á vinnu blaðamanna á fjölmiðlum hér á landi sem annars staðar sem starfa ekki lengur í eðlilegu eða sanngjörnu markaðsumhverfi. Það ógnar rekstri fjölmiðla og þar með faglegri blaðamennsku og frjálsum og óháðum fjölmiðlum. Við þurfum lausnir sem tryggja sanngjörn kjör. Tillögur þessa hóps sýna hvernig það er hægt,“ segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands.

Þrjár tillögur

Gervigreind þarfnast blaðamennsku og blaðamennska þarf sanngjarnan markað. Aðeins þannig er hægt að fjármagna fjölbreytta blaðamennsku í þágu almennings.

Samtökin leggja því til:

  1. Samþykki: Ekki má nota efni fjölmiðla í gervigreind í hagnaðarskyni nema með samþykki rétthafa. Gervigreindarfyrirtæki verða að virða höfundarétt og semja um notkunina.
  2. Gagnsæi: Gervigreindarfyrirtæki eiga að upplýsa rétthafa um hvaða efni þau nota til að þjálfa kerfin og hvernig kerfin nota það. Geri þau það ekki á sönnunarbyrðin að færast yfir á þau.
  3. Framfylgd: Samningaviðræður útgefenda og gervigreindarfyrirtækja hafa enn engu skilað. Því þarf að kanna hvort koma megi á gerðardómi eða annarri leið til að leysa deilur. Þar væri hægt að skera úr um greiðslur og skilmála án þess að neyða rétthafa til að semja.

Dómsmál sýna þörfina

Á miðvikudag setti héraðsdómstóll í Osló lögbann á nýja skilmála Meta sem áttu að taka gildi þann 20. nóvember sem leyfa myndu Meta að skrapa vefi allra notenda Facebook, þ.m.t. fjölmiðla sem gerði Meta gæti síðan nýtt til að þjálfa gervigreindarforrit sín án endurgjalds. Fjölmiðlar víða um heim hafa lýst yfir óánægju með skilmálabreytingarnar.

Nokkur mál sem nú eru fyrir dómstólum sýna að skýrari reglur vantar. Fyrr á árinu höfðaði DPCMO mál gegn OpenAI. DPCMO eru samtök sem fara sameiginlega með höfundarétt danskra fjölmiðla og semja fyrir þeirra hönd. Samtökin segja OpenAI hafa notað danskar fréttir til að þjálfa ChatGPT og birt hluta þeirra í bága við höfundalög. Málið var höfðað eftir að ítrekaðar tilraunir til samninga og sátta báru ekki árangur.

Málið sýnir hve erfitt getur verið fyrir rétthafa að sækja rétt sinn gagnvart alþjóðlegum gervigreindarfyrirtækjum.

Lesa má tillögurnar þrjár hér

Eftirtalin 14 samtök standa að tillögunum:

  • Sameiginleg umsýslusamtök baltneskra fréttaútgefenda
  • Samtök danskra fjölmiðla (Danske Medier)
  • Sameiginleg umsýslusamtök danskra fréttaútgefenda (DPCMO)
  • Danska blaðamannafélagið
  • Samtök eistneskra fjölmiðlafyrirtækja
  • Blaðamannafélag Íslands
  • Samtök norskra fjölmiðlafyrirtækja
  • Norska blaðamannafélagið
  • Samtök sænskra tímaritaútgefenda
  • Sænska blaðamannafélagið
  • Sameiginleg umsýslusamtök sænskra fréttaútgefenda
  • Samtök sænskra fjölmiðlaútgefenda
  • Samtök finnskra fjölmiðla
  • Finnska blaðamannafélagið