- Félagið & fagið
- BÍ
- Faglegt
- Verðlaun & viðurkenningar
- Atvinnutorg
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Blaðamannaverðlaun ársins 2025 verða afhent föstudaginn 13. mars í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi. Afhendingin hefst kl. 18.00 en húsið opnar kl. 17.45. Að venju verða tilnefningar til verðlaunanna kynntar viku fyrir afhendinguna, föstudaginn 6. mars.
Blaðamannaverðlaunin eru veitt árlega af Blaðamannafélagi Íslands til viðurkenningar fyrir framúrskarandi frammistöðu og gott fordæmi í íslenskri blaðamennsku. Með verðlaununum er vakin athygli á vönduðum og metnaðarfullum störfum blaðamanna og mikilvægi frjálsra og faglegra fjölmiðla í lýðræðissamfélagi.
Verðlaun eru veitt í fjórum flokkum:
• Rannsóknarblaðamennska ársins
• Besta umfjöllun ársins
• Blaðamannaverðlaun ársins
• Viðtal ársins
Veitt eru heiðursskjöl í hverjum flokki, verðlaunagripur og peningaverðlaun. Viðurkenningar eru veittar í öllum flokkum svo fremi dómnefnd telji að tilnefningar uppfylli þau faglegu viðmið sem gerð eru.
Að athöfn lokinni verður boðið upp á léttar veigar og DJ Dóra Júlía sér um tónlistina.
Nánari upplýsingar um dagskrá og tilnefningar verða birtar á vef félagsins þegar nær dregur.