Blaðamenn og fjölmiðlar í lykilhlutverki

Í nýrri aðgerðaáætlun ESB til stuðnings lýðræðis er tilkynnt um aukinn stuðning við sjálfstæða og st…
Í nýrri aðgerðaáætlun ESB til stuðnings lýðræðis er tilkynnt um aukinn stuðning við sjálfstæða og staðbundna fjölmiðlun, í þeirri trú að fjölbreytt og frjáls fjölmiðlun sé grunnforsenda upplýstrar samfélagsumræðu. Mynd: iStock

ESB bregst við upplýsingaógnum – Erla Hlynsdóttir skrifar

Evrópusambandið kynnti í nóvember nýja og umfangsmikla áætlun sem miðar að því að styrkja varnir lýðræðisríkja gegn upplýsingaógnum, pólitískri áróðursstarfsemi á netinu og truflun kosninga. Áætlunin, sem nefnist Evrópski lýðræðisskjöldurinn (European Democracy Shield), sameinar aðgerðir á sviði fjölmiðla, kosninga, upplýsingaöryggis og borgaralegs samfélags.

Áherslan er bæði á að efla sjálfstæða fjölmiðlun og öryggi blaðamanna, og á að búa stjórnvöldum, rannsóknaraðilum og borgurum betri verkfæri til að greina og bregðast við rangfærslum og skipulögðum áróðursherferðum.

Vernd upplýsingaumhverfisins

Fyrsti meginhluti aðgerðanna beinist að því að styrkja heilindi upplýsingaumhverfisins. Þar vegur þungt stofnun Evrópsku staðreyndavaktarinnar (European Network of Fact-Checkers), sem verður sameiginlegt evrópskt net staðreyndavöktunar og rannsóknarsetra.

Hlutverk hennar verður að samhæfa greiningu á rangfærslum, miðla upplýsingum milli landa og styðja við hraðari viðbrögð gegn skipulagðri misbeitingu upplýsinga. Einnig verður styrkt starfsemi Evrópsku stafrænu miðlavaktarinnar (European Digital Media Observatory, EDMO) og unnið að sameiginlegu viðbragðsferli fyrir alvarleg upplýsingaáföll.

Fjölmiðlar, blaðamenn og lýðræðislegar stofnanir

Mikil áhersla er lögð á fjölmiðla og blaðamenn. Framkvæmdastjórnin hyggst gefa út tilmæli um öryggi blaðamanna, meðal annars vegna aukinna netárása, hótana og pólitískrar markvissrar truflunar á fjölmiðlastarfsemi.

Aðgerðir gegn þöggunarmálsóknum verða efldar, bæði með sértækum leiðbeiningum og breyttum regluverkum. Þá mun ESB auka stuðning við sjálfstæða og staðbundna fjölmiðlun, í þeirri trú að fjölbreytt og frjáls fjölmiðlun sé grunnforsenda upplýstrar samfélagsumræðu.

Á sviði kosninga er gert ráð fyrir endurbættri verkfærakistu stafrænu þjónustulaganna fyrir kosningar og eflingu samstarfs innan Evrópska samvinnunetsins um kosningar (European Cooperation Network on Elections).

Samfélagslegt viðnámsþol og lýðræðisfræðsla

Til að efla getu samfélaga til að standast upplýsingaógnir verða kynntar nýjar aðgerðir í lýðræðisfræðslu og stafrænu læsi, bæði fyrir unga og eldri borgara.

Sett verður á laggirnar ný miðstöð um lýðræðistækni, Civic Tech Hub, sem styður þróun stafrænnar þátttökutækni, og gefinn út sérstakur leiðarvísir ESB um lýðræði, ætlaður almenningi og fræðasamfélagi.

Ný miðstöð fyrir sameiginleg viðbrögð

Þá gerir áætlunin ráð fyrir stofnun Evrópumiðstöðvar um lýðræðislegt viðnámsþol (European Centre for Democratic Resilience). Miðstöðin mun samhæfa vöktun, greiningu og viðbrögð aðildarríkja ESB þegar utanaðkomandi aðilar reyna að hafa áhrif á upplýsingaumhverfi, umræðu eða ferla sem tengjast lýðræðislegri ákvarðanatöku. Hún er jafnframt hugsuð sem sameiginlegur vettvangur fjölmiðla, stjórnvalda og fræðasamfélags til að takast markvisst á við nýjar tegundir upplýsingaógna.


Hugtök

Evrópsk lýðræðisvernd (European Democracy Shield)
Heildstæð aðgerðaáætlun ESB til að styrkja varnir lýðræðis, fjölmiðla og kosninga.

Evrópska staðreyndavaktin (European Network of Fact-Checkers)
Nýtt evrópskt net staðreyndayfirferða sem samhæfir greiningu rangfærslna og upplýsingamengunar.

Evrópska miðstöðin um lýðræðislegt viðnámsþol (European Centre for Democratic Resilience)
Sameiginleg miðstöð ríkja ESB sem safnar, greinir og miðlar upplýsingum um erlenda íhlutun og upplýsingaógnir.

Þöggunarmálssóknir (SLAPP: Strategic Lawsuits Against Public Participation)
Málssóknir þar sem markmiðið er ekki endilega að ná fram lagalegu réttlæti heldur er þeim ætlað að þagga niður umfjöllun blaðamanna og letja bæði almenna borgara og athafnafólk til að taka þátt í opinberri umræðu.

Aðalatriði aðgerðaáætlunarinnar

  • vernd upplýsingaumhverfisins
  • aukið öryggi blaðamanna
  • varnir gegn þöggunarmálssóknum
  • efling staðbundinna fjölmiðla
  • vernd kosninga og lýðræðisferla
  • aukið miðlalæsi og þátttaka almennings