Dómstólasýslan segir dómurum skylt að að afhenda blaðamönnum dóma í sakamálum

Mynd:byggingar.is
Mynd:byggingar.is

Dómstólasýslan hefur staðfest að dómurum sé skylt að afhenda blaðamönnum eintök af dómum í sakamálum samkvæmt 3. mgr. 16. gr. laga um meðferð sakamála. Jafnframt segir í svari stofnunarinnar við erindi Blaðamannafélags Íslands að ekki sé heimilt að neita fjölmiðli um afhendingu dómsúrlausnar með vísan til reglna um útgáfu dóma og úrskurða á vefsíðum dómstóla.

Erindi Blaðamannafélags Íslands var sent dómstólasýslunni í maí eftir að félaginu höfðu borist upplýsingar um tilvik þar sem blaðamönnum hafði verið synjað um aðgang að dómum héraðsdómstóla í sakamálum. Í erindinu var meðal annars vísað til afgreiðslu Héraðsdóms Reykjaness á beiðni blaðamanns Vísis um afhendingu dóma í málum tveggja lögreglumanna, auk annarra sambærilegra tilvika.

Í erindinu benti félagið á að mikilvægt væri að greina á milli reglna um birtingu dóma að frumkvæði dómstóla annars vegar og reglna um afhendingu dóma samkvæmt beiðni hins vegar. Þótt dómstólar hafi svigrúm til mats á því hvort dómsúrlausnir séu birtar á vefsíðum sínum, verði ekki séð að sambærilegt svigrúm sé fyrir hendi þegar blaðamenn óska eftir afhendingu dóma á grundvelli 3. mgr. 16. gr. laga um meðferð sakamála.

Blaðamannafélagið benti jafnframt á að þótt dómurum væri heimilt að afmá úr dómi atriði sem sérstök ástæða væri til að leynt færu með tilliti til almanna- eða einkahagsmuna veiti ákvæðið ekki heimild til að synja alfarið um afhendingu dóms.

Í svari dómstólasýslunnar segir að dómurum sé skylt að afhenda blaðamönnum eintak dómsúrlausnar. Heimilt sé að afmá nöfn og önnur atriði sem eðlilegt sé að fari leynt með tilliti til almanna- eða einkahagsmuna áður en afhending fari fram. Við það mat skuli líta til reglna um útgáfu dóma og úrskurða á vefsíðum dómstóla. Dómstólasýslan tekur hins vegar sérstaklega fram að ekki sé heimilt að neita afhendingu dómsúrlausnar með vísan til þeirra reglna. Í lok svarsins kemur fram að allir dómstjórar héraðsdómstóla muni fá afrit af erindi Blaðamannafélags Íslands og svari dómstólasýslunnar.

Blaðamannafélag Íslands telur mikilvægt að framkvæmd dómstóla á þessu sviði sé samræmd og í samræmi við lög. Aðgangur blaðamanna að dómum er ein af grundvallarforsendum upplýstrar umfjöllunar um störf dómstóla og þau mál sem þar eru til lykta leidd.