Einstakir, handunnir kostagripir úr kopar

Verðlaunagripur Blaðamannaverðlaunanna er handunninn hjá Málmsmiðjunni Hellu. Ljósmyndir: Golli
Verðlaunagripur Blaðamannaverðlaunanna er handunninn hjá Málmsmiðjunni Hellu. Ljósmyndir: Golli

Verðlaunagripur Blaðamannaverðlaunanna og reyndar ljósmyndaverðlauna líka hefur verið afhentur í þau rúm 20 ár sem viðburðurinn hefur verið haldinn. Verðlaunagripirnir eru sérlega vandað handverk sem handverksmennirnir hjá Málmsmiðjunni Hellu í Hafnarfirði hönnuðu fyrir félagið í samvinnu við Róbert Marshall, þáverandi formann Blaðamannafélagsins, og Brynhildi Ólafsdóttur blaðamann og félagsmann til margra ára. Golli ljósmyndari fór í heimsókn til Grétars og félaga hjá Málmsmiðjunni Hellu fyrir síðustu Blaðamannaverðlaun þegar verið var að steypa gripina.

Eins og sjá má á myndunum er hver gripur handunninn af mikilli kostgæfni. Hann er steyptur í þrennu lagi: plattinn, áttavitinn og penninn. Útbúnar eru svokallaðar prentklisjur með nöfnum vinningshafa þegar þau hafa verið valin og gerð eru mót fyrir plattann. Svo tekur við bras með sand því öll þrjú stykkin sem mynda hvern grip þarf að móta í sandinn. 1200 gráða heitum kopar er svo hellt í sandmótin og verðlaunagripirnir sandsteyptir. Aðferðin er eldgömul málmsteypuaðferð og sú sama og er notuð við að steypa klassískar pönnukökupönnur, nema þá er notað ál í mótin en ekki kopar.

Þegar koparstykkin hafa verið steypt í sand þá þarf að saga, slípa vandlega og setja saman. Áttavitinn er skrúfaður niður á plattann og penninn síðan soðinn á gripinn. Eftir það er hver gripur sandblásinn, hitaður í ofni og litaður svo hann líti sem best út.

Fyrir síðustu ljósmyndaverðlaun (Mynd ársins 2024) var einnig hannaður og framleiddur sérstakur gripur fyrir verðlaunin. Í stað pennans og áttavitans er ljósop, líkt og það sem er að finna í merki Blaðaljósmyndarafélags Íslands.