- Félagið & fagið
- BÍ
- Faglegt
- Verðlaun & viðurkenningar
- Atvinnutorg
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Fjórtán félagar í Blaðamannafélagi Íslands sem helgað hafa lífsstarf sitt blaðamennsku og/eða hagsmunum blaðamannastéttarinnar voru heiðraðir með gullmerki félagsins í gær, 29. janúar. Um veitingu gullmerkis gildir sérstök reglugerð.
Merkið hefur verið veitt nokkuð reglulega, að meðaltali á um fimm ára fresti, frá árinu 1982. Það var síðast veitt 2022 og þar áður árið 2017 en alls hafa 75 blaðamenn nú hlotið Gullmerki BÍ.
Af þeim fjórtán sem voru heiðraðir voru 12 viðstaddir. Þeir sem voru heiðraðir að þessu sinni eru:
Arnar Páll Hauksson
Árni Sæberg Kristjánsson
Bogi Ágústsson
Broddi Broddason
Friðrik Þór Guðmundsson
Guðmundur Sveinn Hermannsson
Gísli Sigurgeirsson
Helgi Bjarnason
Hjálmar Jónsson
Jón Guðmar Hauksson
Páll Hilmar Ketilsson
Skapti Hallgrímsson
Sigurður Már Jónsson
Þorsteinn J Vilhjálmsson
Félagar þessir uppfylla skilyrði um að hafa ýmist helgað lífsstarf sitt blaðamennsku eða hagsmunum blaðamannastéttarinnar. Gullmerkið var veitt við sérstaka athöfn í sal BÍ. Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður BÍ, veitti merkin fyrir hönd stjórnar.
Þess má geta að af þeim 75 blaðamönnum sem hlotið hafa gullmerki eru aðeins 9 konur. Að þessu sinni voru eingöngu karlar sem uppfylltu skilyrðin sem endurspeglar stöðu kvenna í blaðamennsku í fyrri tíð. Í dag eru um 57% starfandi blaðamanna í BÍ karlar og 43% konur.