- Félagið & fagið
- BÍ →
- Faglegt →
- Verðlaun & viðurkenningar →
- Atvinnutorg →
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Skúli Halldórsson, aðstoðarfréttastjóri mbl.is, skrifar
Þegar rætt er um áreiðanleika upplýsinga í nútímanum eru aðsteðjandi ógnir samfélagsmiðla og gervigreindar ef til vill það fyrsta sem kemur upp í huga margra. Gott og vel. Hvort tveggja fyrirbæranna felur í sér tækifæri fyrir fjölmiðla en heggur sömuleiðis að tilvist þeirra.
Önnur þróun á sér þó einnig stað þessu samhliða, sem varla nokkur íslenskur blaðamaður hefur farið varhluta af. Það er, að þeim fjölgar sífellt sem starfa hinum megin borðsins, á meðan úr okkar röðum molnar.
Fleiri tölvupóstar, fleiri tilkynningar, fleiri bein streymi, fleiri símtöl. Fleiri upplýsingafulltrúar, fleiri samskiptastjórar.
Færri blaðamenn, færri mínútur í góða blaðamennsku, færri vel unnar fréttir um efni sem skiptir Íslendinga máli.
Sem sagt: Fleiri fullyrðingar, færri spurningar.
Þetta er staðreynd. Raunveruleiki síðustu ára. Og ekki eru horfurnar bjartar.
Ekki er þar með sagt að ekki megi reiða sig á þær upplýsingar sem viðkomandi koma á framfæri við fjölmiðla. En hagsmunir þeirra eru óhjákvæmilega samofnir því efni sem þeir halda að fjölmiðlum, og tilkynningarnar yfirleitt ekki gerðar til að viðhalda upplýstu samfélagi, stundum þvert á móti.
Þróunin öll er á þann veg að maður fær ekki varist þeirri tilhugsun að þetta hafi verið betra hér áður fyrr.
Lögreglan á Vestfjörðum uppfærir Facebook-myndina sína að kvöldi til, til að sýna fylgjendum nýjan og glæsilegan jeppakost sinn. Á sama tíma næst ekki í hana vegna mögulegs útkalls og leitar að hvítabirni.
Upplýsingafulltrúi ráðuneytis birtir í nafni ráðherra trúnaðarsamskipti blaðamanns, vegna þess eins að hann er ósáttur við áherslur fjölmiðilsins í umfjöllun um málaflokk ráðuneytisins. Kemst upp með að biðja hvorki kóng né prest afsökunar, með starfsöryggi og vinnutíma sem blaðamenn geta ekki einu sinni leyft sér að dreyma um.
Tíu upplýsingafulltrúar mæta til vinnu og skrifa „fréttir“ fyrir það sem borgin kýs að kalla ritstjórn Reykjavíkurborgar. Það eru fleiri en eru á fréttavakt mbl.is þann daginn.
Er það svona sem samfélagið vill hafa þetta? Ætlum við að reiða okkur á þetta til frambúðar? Ef ekki, hvað er til ráða?